Dagblaðið - 05.10.1981, Qupperneq 9
9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
REUTER
Brussel:
Deiltum vín
f dag rennur út fimm daga frestur
sem Efnahagsbandalagið hefur gefið
Frakklandi til að aflétta innflutnings-
banni sinu á ódýrum, ítölskum vínum.
Talsmaður Efnahagsbandalagsins
segir að Frakkland eigi á hættu að
verða stefnt fyrir Evrópudómstólinn ef
það virðir ákvörðun þess að vettugi.
Hann bætir því við að Ítalía sé tilbúin tii
að stefna Frakklandi upp á eigið ein-
dæmi ef ekki finnst önnur lausn á þeim
tveggja mánaða deilum er átt hafa sér
stað milli landanna um víninnflutning.
Um 100 milljónir lítra af ítölsku víni
hafa nú verið kyrrsettir í frönskum
tollbúðum og ítalir ásaka Frakka um
að brjóta (ríverzlunarsamninga Efna-
hagsbandalagsins. Fyrir viku var ætlazt
til að landbúnaðarráðherrar landanna
ræddu málin sín á milli en sá franski
mættiekki til leiks.
Halda Frakkar því fram að ekki hafl
fylgt tilskilin tollskjöl með ítalska vin-
inu.
Sameinuðu þjóðirnar:
EITUREFNI
Sérfræðinganefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna hefur ákveðið að heim-
sækja fjögur Asíulönd, Afghanistan,
Laos, Thailand og Pakistan, til að
ganga úr skugga um réttmæti þeirra
ásakana bandarískra stjórnvalda að
Sovétríkin hafi notað þar eiturefni í
hernaði. Fram að þessu hefur nefndin
orðið að notast við aðsendar skýrslur
sem hún hefur talið mjög ófullnægj-
andi. Telur nefndin að aðeins eigin
vettvangsrannsókn og skoðun á hugs-
anlegum fórnarlömbum eitursins geti
skorið úr um hvort bandarísk stjórn-
völd fari með rétt mál eða ekki. Eitrið
sem hér um ræðir er nefnt „myco-
toxin” og er banvænt. í síðasta mánuði
sagði Alexander Haig, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, að eiturefni þetta
hefði fundizt við rannsóknir á gróðri í
Thailandi.
Rannsóknarnefndin hefur enn ekki
fengið svar við mánaðargamalli beiðni
sinni frá viðkomandi ríkjum um leyfi
til rannsókna. Sovétríkin og banda-
menn þeirra í Vietnam, Laos og
Afghanistan hafa lagzt gegn rannsókn-
inni og á þingi Sameinuðu þjóðanna á
síðasta ári greiddu þau atkvæði gegn
því að slík rannsókn, sem nú er fyrir-
huguð, færi fram. Nú hefur rannsókn-
arnefndin hins vegar hlotið stuðning
þeirrar deildar Sameinuðu þjóðanna
sem málið heyrir undir en yfirmaður
hennar er Sovétmaðurinn V.A. Ustin-
ov.
Danmörk:
Eitruð matar-
olía á markaði
Tólf brúsar af eitraðri mataroliu frá
Spáni hafa fundizt í verzlun i Kaup-
mannahöfn. Hefur matvælaeftirliti 40
sveitarfélaga nú verið gert skylt að
hefja samstundis leit að þessari lifs-
hættulegu olíu sem leitt hefur til dauða
yfir hundrað Spánverja. Matarolían
sem fannst var seld undir merkjunum
„Eureka” og ,,E1 Olivo”, sem eru tvö
þeirra fimmtán vörumerkja sem
grunuð eru um að innihalda eitruð rot-
varnarefni. Danska matvælaeftirlitið
vissi ekki til þess, áður en brúsarnir
fundust, að þessi gerð matarolíu hefði
verið flutt til landsins. Hefur það nú
sent út aðvörun. Danska tollgæzlan
vinnur nú að rannsókn á innflutningi
matarolíu til Danmerkur, til að sjá
megi um hvaða tegundir hefur verið að
ræða.
Breytingar á gjaldeyrísmörkuðum Evrópu:
Þýzka markið hækkað,
franski frankinn feílur
— Gengisfellingin harðlega gagnrýnd í Frakklandi
Fjármálaráðherrar og bankastjór-
ar þjóðbanka aðildarlanda evrópska
gjaldeyriskerfisins (EMS) tóku í gær
þá ákvörðun aö hækka gengi þýzka
marksins og hollenzkrar florinu um
5,5% en lækka gengi franska frank-
ans og ítalskrar líru um 3%.
Evrópska gjaldeyriskerfið var sett
á stofn í marz 1979 til að skapa stöð-
ugleika gegn fljótandi gengi og voru
helztu frumkvöðlar þess Helmut
Schmidt kanslari Vestur-Þýzkalands
og Giscard d’Estaing fyrrverandi
Frakklandsforseti. önnur aðildarríki
eru Belgía, Lúxemborg, Holland,
Danmörk, ítalia og Irland. Var aðild-
arríkjunum sett það mark, að gengis-
breytingar þeirra innbyrðis væru
innan við 2,5%. Hefur verið erfitt að
fylgja þessari reglu að undanförnu og
hafa Frakkar og Belgar kostað miklu
til til að halda gjaldmiðlum sínum frá
gengislækkun en Þjóðverjar hafa
hins vegar þurft að gera ráðstafanir
til að forðast hækkun marksins.
Núverandi fjármálaráðherra
Frakka, Jacques Delors, sagði hins
vegar við fréttamenn, að gengislækk-
unin hefði verið „sameiginlegt og
óhjákvæmilegt skref” vegna þess
að verðbólga í Frakklandi væri
13,7% áári en6,6% íÞýzkalandi.
VERÐUR NÚ, OKKAR HEIMAHÖFN
Viö höfum flutt skrifstofur okkar og
alla varahluta- og viðgerðaþjónustu
í Skipholt 7, Reykjavík.
Við munum sem fyrr, veita alla
þjónustu fyrir SIMRAD / SKIPPER
siglinga- og fiskileitartæki í okkar
nýju húsakynnum.
SIMRAD umboóió á íslandi
FRIÐRIK \..|0\SS0\ HF.
SKIPHOLT 7 — BOX 362 121 REYKJAVÍK — SÍMAR 14135 — 14340