Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Blaðsíða 10
Fundargerd
aðalfundar Rœktunarfjelags Norðurlands
22.-23. júni 1923.
1. Ár 1923, föstudaginn 22. júní var aðalfundur Raekt-
unarfjelags Norðurlands settur og haldinn í húsi fjelags-
ins á Akureyri.
Sigurður E. Hlíðar, formaður fjelagsins, setti fundinn
og bauð fulltrúana velkomna. Var síðan gengið til kosn-
inga á fundarstjórum og Sigurður E. Hlíðar, dýralæknir
kosinn aðalfundarstjóri, en til vara alþingismaður Stefán
Stefánsson í Fagraskógi. Ritarar voru kosnir: Baldvin
Friðlaugsson búfræðingur á Reykjum og Konráð Vil-
hjálmsson, bóndi á Hafralæk.
2. Kosin þriggja manna nefnd, til að athuga kjörbrjef
fulltrúanna. Kosningu hlutu:
Stefán Stefánsson, alþm., Fagraskógi.
Porsteinn Porsteinsson, Daðastöðum.
Kristján Jónsson, Nesi.
Samþykti nefndin öll kjörbrjefin athugasemdalaust.
Pá var lögð fram beiðni frá Búnaðarfjelagi Svarfdæla,
um að æfifjelagsdeild búnaðarfjelagsins yrði tekin upp
sem deild i Ræktunarfjelag Norðurlands. Æfifjelagar eru
þar 52 að tölu. Lagðar voru fram reglur deildarinnar.