Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Blaðsíða 60
Heysleðar.
Hjer á öðrum stað í ritinu, í yfirliti yfir starfsemi fje-
lagsins, er minst á heysleða þá, sem Ræktunarfjelagið Ijet
gera á þessu ári.
En þar sem margir bændur, sjerstaklega hjer norðan-
lands, þekkja lítið eða ekkert til þessara vinnutækja, skal
jeg reyna að lýsa þeim í stuttu máli. Verður gerð á hey-
sleða Rfl. Nl. lögð til grundvallar:
Meiðalengd sleðans er 3,7 m., meiðahæð 14 sm. og
meiðaþykt 3,5 sm. Dragið er úr trje, 8,5 sm. á br. og
2,5 sm. á þykt; stendur það því lítið eitt út af meiðun-
um beggja vegna. Framan á meiðasniðin er sett þunt járn
til hlífðar.
Breidd sleðans er 1 m. (þar í meiðabreidd). Rimar eru
aðeins fjórar, 18 sm. br. og tengdar meiðunum innan-
vert með sterkum járnkröppum.
Breiður borðrenningsstúfur er sneiddur og negldur inn
á hvern rimaenda þannig, að hann stendur á ská upp á
við og 27 sm. út frá meiðunum.
Eftir endilöngum sleðanum, fram að meiðasniði og
aftur alla leið, eru negldar 2ja sm. þykkar borðþynnur á
rimarnar og yst út á stúfendana; verður þá yfirborð sleð-
ans dálítið íhvolft. (í stað borðþynna væri líklega heppi-
legra að nota sljett plötujárn.)
innarlega í báðar sleðanasirnar eru boruð göt og í