Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Qupperneq 2
4
verðlagi frá fyrri árum, svo að þær raunverulega væru
miklu verðmeiri en tölnr reikningsins sýna, en skuldir
hins vegar allar færðar með raunverulegu gildi, svo að í
augnablikinu er hagur félagsins betri en reikningurinn
sýnir.
Rekstursábati á árinu nam .............. kr. 2460,11
Eignir félagsins í árslok 1940 ......... — 156143,04
Skuldir á sama tíma..................... — 53189,88
Eignir umfram skuldir................... — 102953,16
Umræður urðu engar teljandi. Voru reikningarnir síð-
an bornir undir atkvæði og samþykktir með öllum at-
kvæðum.
Þá voru mættir fulltrúar:
Frá æfifélagadeild Akureyrar: Kristján Jónsson.
Frá æfifélagadeild Svarfdæla: Gunnlaugur Gíslason,
Sökku.
3. Fjárhagsáœtlun Rf. Nl. fyrir árið 1942. Formaður
lagði fram áætlunina og benti á í því sambandi, að til-
raunastöðin væri nú viðurkennd sem önnur aðaltilrauna-
stöð landsins og fengi því styrk nú beint frá ríkissjóði.
Tillaga kom fram um að kjósa þriggja manna nefnd til
að athuga áætlunina.
Kosnir voru: Gunnlaugur Gíslason, Júníus Jónsson og
Kristján Jónsson.
Að því búnu var gert fundarhlé.
Að loknum miðdegisverði sýndi framkvæmdastjóri
fulltrúunum sýnishorn af því, sem ræktað er í tilrauna-
stöðinni. Þar voru sýndar ýmsar tegundir berja, káls,
rófna, kartaflna og annars grænmetis, ennfremur sýnis-
horn af grænfóðri og korntegundum. Skýrði framkvæmda-
stjóri frá ræktun þessara plantna, og lagði sérstaka áherzlu
á, að það sem þarna væri sýnt, væri allt ræktað án nokk-
urrar sérstakrar umhyggju, og mundi vera hægt að rækta