Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 20
22
Af seinvöxnu tegundunum hefur Up to date gefið
mesta uppskeru að meðaltali, en Rauðar úrvals mest
þurefni. Af fljótvöxnum tekundum hefur Gullauga gefið
bæði mesta uppskeru og þurefni. Hvað bragðgæði áhrærir
munu flestir telja Rauðar og Gullauga bera af.
7. Varnir gegn kálflugu.
Kálflugan er tiltölulega nýr kvilli hér á landi, en þar
sem fluga þessi hefur náð fótfestu, er hún svo aðsópsmikil,
að kálrækt mun þar lítt gerleg án sérstakra varna. Plága
þessi heimsækir allar jurtir af krossblómaætt, en nokkuð
misjafnt þó. Það er maðkurinn, eða lirfa flugunnar, sem
tjóninu veldur. Flugan leggur egg sín niður með rótar-
hálsi jurtanna í júní—júlí, og þar kviknar maðkurinn,
sem nagar síðan rætur jurtanna.
Varnirnar eru ýmist í því faldar að bera einhver þau
efni kringum plönturnar, sem fæla flugurnar frá því að
leggja þar egg sín, eða vökva með efnum, sem eyða eggj-
unum, þegar flugan hefur lagt þau. í þessari tilraun hafa
3 aðferðir verið reyndar:
a. Rótum plantnanna dýft í velling af Kalómel og Kao-
lin, um leið og plantað er út.
b. Vökvað þrisvar sinnum með sublimatupplausn.
c. Vökvað þrisvar sinnum með karbíSkrimpupplausn.
Allar þessar aðferðir hafa nú í tvö ár verið reyndar
bæði við blómkál og hvítkál. Síðastliðið sumar var auk
ídýfingarinnar vökvað einu sinni með Karbókrimp á a-
liðnum.
Eftirfarandi tölur sýna, hve mörg procent lifðu af
plöntunum af hverri káltegund, og að meðaltali eftir því
hvaða aðferð var notuð.