Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Qupperneq 34
36
virðist milli kartöflufjölda undir grasi 1936 og 1937. Nr.
16, sem aðeins hafði 8 kartöflur undir grasi 1936, hefur
að meðaltali 20,5 undir grasi 1937 og lægsta meðalvikt á
kartöflu af öllum stofnunum 20,1 gr. Nr. 1 hefur hins-
vegar gefið 27 kartöflur undan grasi 1936, en hefur lang-
hæsta meðalvikt á kartöflu 1937.
Haustið 1937 er valið úr stofunum. Er það úrval byggt
rnest á uppskerumagni, en þó með hliðsjón af meðalstærð
kartaflnanna. Samanburður á uppskerumagni fæst með
því að reikna uppskeru undan 100 grösum:
Uppskera í kg. X 100
X = -----------------------
Grasafjöldi
en meðalþyngdin fæst vitanlega þannig:
4000 gr.
X = ----------------------
Tala kartaflna í 4 kg.
Samkvæmt þessu hafa 10 bestu stofnarnir verið flokk-
aðar í tvo flokka. í I. flokk koma nr. 1, 8, 23 og 25 en í
II. flokk nr. 3, 5, 6, 21, 24 og 29. Allir I. flokks stofnarnir
og nr. 6 úr II. flokki eru geymdir aðskildir til næsta sum-
ars, en hinum 5 II. flokks stofnunum steypt saman í eitt.
Allir aðrir stofnar eru feldir niður úr tilrauninni og koma
ekki frekar til greina.
Sumarið 1938 er svo gerður samanburður á þessum 5
lireinu stofnum, samsteypunni og óvöldu kartöflunum.
Var nú hægt að gera reglulega samanburðartilraun með
10 ferm. reitum og 4 endurtekningum.
Arangurinn af þessari tilraun sést á töflu II.