Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 36
38
TAFLA II.
Samanburður á úrvalskartöflum 1938.
Upp- Meðalv. Noth. Hlutfallstölur
skera á kart- Stærðahl utföll % uppsk. Oll Noth.
100 kg öflu Undir 20-30 30-70 Yfir 100 kg. upp- upp-
Teg. pr.ha. Sr- 20 gr. gr• gr- 70 gr. pr.ha. skera skera
Ovaldar 135 24,3 29.0 18,9 44,8 7,3 95,8 100,0 100,0
Nr. 1 201 29,6 19,2 20,9 49,3 10,6 162,4 148,9 169,5
- 6 156 26,9 29,6 20,9 44,9 4,6 109,8 115,6 114,6
- 8 179 27,2 23,1 18,7 53,2 5,0 137,7 132,6 143,7
- 23 148 26,6 25,8 14,8 56,4 3,0 109,8 109,6 114,6
- 25 185 28,6 20,2 21,5 49,2 9,1 147,6 137,0 154,1
Samsteypa 168 27,1 22,6 23,3 49,0 5,1 130,0 124,4 135,7
Samanburðurinn 1938 sýnir mjög greinilega að tvær
úrvalstegundirnar, nr. 1 og nr. 25, bera mjög af. Hafa
þær bæði gefið mesta uppskeru, vænstar kartöflur og
minnst smælki. Hinar úrvalskartöflurnar hafa að vísu
gefið meiri uppskeru en óvöldu kartöflurnar, en mun-
urinn er lítill sé nr. 8 undanskilin. Þær eru því ekki
reyndar frekar, þó er nr. 8 höfð með í tilraun 1939 en
gaf ekki þá raun að ástæða þætti til að reyna liana frekar.
Með árinu 1938 má því telja, að úrvalinu sé lokið. Af
þeim 29 stofnum, sem upprunalega voru valdir, eru nú
aðeins eftir 2, sem virðast skara fram úr og sem reyndir
eru til þrautar næstu árin, bæði í samanburði við upphaf-
legu óvöldu kartöflurnar og eins í samanburði við aðrar
þektar kartöflutegundir.
Samanburðartilraunirnar 1939—1942.
Þessi 4 ára samanburður hefir verið framkvæmdur í
tvennu lagi. I fyrsta lagi hafa úrvalstegundirnar Rauðar
nr. 1 og Rauðar nr. 23, verið bornar saman við Rauðar
óvaldar öll árin. I öðru lagi hefir úrvalstegundin Rauðar
25 verið borin saman við Rauðar óvaldar og ýmsar fleiri