Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 42
44
3. Úrvalstegundin nr. 25 stendur fullkomlega jafnfcetis
öðrum seinvöxnum kartöflutegundum, sem rcektaðar hafa
verið í tilraunastöðinni, einkum hvað þurefnisuppskeru
áhrœrir.
4. Úrvalið hefur engin áhrif haft á útlitið, nema hvað
úrvalstegundin er jafnari, þegar upp er tekið og grasið á
henni jafnara og meira heldur en á óvöldu kartöflunum.
Innri eiginleikar, svo sem hragðgceði, þurefnisproc., mót-
staða gegn stöngulsýki o. fl., hafa engum breytingum
tekið.
Engin ástæða er til að halda, að árangurinn af úrvalinu
verði skammvinnur, svo framarlega sem blöndun á teg-
unum á sér ekki stað. Á því er þó alltaf nokkur hætta
meðan óvalda tegundin er ræktuð á sama stað og úrvalið
og ekki þarf nema ein kartafla af þeim óvöldu að slæðast
saman við úrvalið, til þess að árangurinn af því hverfi á
nokkrum árum. Til þess að fyrirbyggja þetta, hefur verið
reynt að rækta þann hluta úrvalstegundanna, sem útsæði
hefur verið tekið úr,sem best aðgreindan frá óvöldu kart-
öflunum og þær ekki ræktaðar þar, sem aðrar rauðar
kartöflur voru ræktaðar næsta ár á undan.
Verður svo framtíðin að skera úr því, hvort tekizt
hefur að halda úrvalinu fullkomlega einangruðu, eða
hvort nýtt úrval kann að verða nauðsynlegt, er fram líða
stundir.
Ólaf ur Jónsson,