Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Síða 61
63
ið hægt að fá eitthvað af nothæfum hesjustaurum úr
Vaglaskógi, Hallormsstaðaskógi og e. t. v. víðar.
Kostnaðarsamanburð á því að þurka á hesjum, og í
flekkjum, er ekki auðvelt að gera. Vinna við að hesja 10
hesta af heyi, hefir mér reynst verða um 3 dagsverk, er
þá miðað við það, að grasið sé slegið rennblautt og verk-
ið lramkvæmt í þurklausu veðri. Til þess að þurka sama
heymagn á venjul. hátt, í flekkjum, fer misjafnlega mikil
vinna, eftir því hvernig tíðarfarið er. Þegar best gengur,
mfá komast af nreð 3 samfelda þurkdaga á samskonar
má komast af með 2—3 snúninga á dag til þess, eða 12—18
vinnustundir. Til þess að raka saman flekknum og setja
hann í bólstra áætla eg minst 4 vinnustundir. Það lætur
því nærri, að í besta tilfelli megi komast af með 2 dags-
verk til að þurka heyið í flekk. Til þess að taka flekkinn
upp í föng eða sæti og breiða aftur, áætla eg 6 vinnust.
Þurfi að gera það tvívegis, áður en heyið er fullþurt, fara
þá alls rúm 3 dagsv. til að þurka heyið að fullu. Sé tíð
mjög óhagstæð krefst flekkþurkunin enn fleiri vinnu-
stunda. Þá hrekst heyið einnig miklu meira, en á hesjun-
um og verður lakara fóður.
Af því sem hér hefir verið sagt, má draga þá ályktun,
að ekki svari kostnaði að þurka á hesjum, nema í óþurka-
tíð. Þó er þess að gæta, að samkvæmt þessari áætlun, eru
þær vinnustundir, sem fara til þess að hesja, mun verð-
minni, en hinar, vegna þess, að votviðrisdaga notast
vinnuaflið ver en þurkdaga. Þess vegna er sjálfsagt að
nota þá daga til að hesja, sem á annan hátt myndu koma
að litlum notum við heyskapinn. Það hey, sem helst
kemur tif greina að þurka á hesjum, er hafrar, ýmsar
belgjurtir og stórgerð nýræktartaða, einkum rauðsmára-
taða. Blöð rauðsmárans og fleiri belgjurta molna svo við
þurkinn, að þau þola illa þá meðferð, sem heyið fær í
flekkjunum. Slíkar fóðurjurtir er réttmætt að þurka á
hesjum, hvernig sem viðrar. Komið getur til greina að