Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1966, Side 48

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1966, Side 48
50 um innihalda langstærsta hluta ai brennisteinsforða moldar- innar 70—80% eða jafnvel meir. Brennisteinn, sem losnar við rotnun, úr hinum lífræna hluta skolast mjög fljótt burtu úr jarðveginum og nýtist ekki af plöntunum, nema þær grípi gæsina þegar hún gefst. Ekki virðist fjarri að álykta sem svo, að því snauðari sem jarðvegur er á lífrænar leifar þeim mun minna sé þar af brennisteini til umráða fyrir plönturnar. Nokkurt magn af brennisteini berst jarðvegi úr loftinu með regnvatni. Hér á landi fellur stór hluti ársúrkomunn- ar ekki á vaxtartíma plantnanna og þar að auki á þeim tíma sem vatnshreyfingin er niður á við í jarðveginum og af- streymi af landinu. Við þannig aðstæður má búast við að mikill hluti af brennisteini, er berst með regnvatni, skof- ist jafnhraðan burtu úr jarðveginum. Af framanskráðu er Ijóst að ekki er ósennilegt að á ýms- um landsvæðum geti skortur á brennisteini valdið uppskeru- rýrnun, ef ekkert er að gert þ. e. a. s. enginn brennisteins- áburður borinn á. Ekki verður sagt að nýtt sé af nálinni að nota brenni- steinssambönd sem áburð, þar sem sögur herma, að fangt aftur í aldir hafi gips verið breitt á tún og akra sem áburð- ur löngu áður en vitað var að í þessu efni væri um brenni- stein að ræða. Ætla mætti að svo gamalkunn reynsla ásamt niðurstöðum síðari tíma vísinda hefði valdið því að þeir, sem við jarðrækt fást bæði sem starf og ekki síður þeim, sem að rannsóknum í jarðrækt vinna, hefðu verið vakandi og hindrað það að brennisteinsskortur ylli uppskerutjóni hjá bændum. Reynslan hefur því miður orðið á annan veg víða um heim. Er á þessu hugsanleg skýring. Á sokkabandsárum notkunar með tilbúinn áburð var notað mjög mikið af áburði, sem hafði að geyma brennistein. Byggðist þetta fyrst og fremst á því, að til framleiðslu á bæði superfosfati, sem á þeim tíma var algengasti fosfóráburðurinn, og ammonium- súlfati, stækju svonefndri, er notuð brennisteinssýra og af þeim sökum innihalda þessar áburðartegundir rnikið magn af brennisteini. Á seinni árum hafa komið fram nýjar fos- fór- og köfnunarefnisáburðartegundir svo sem þrífosfat,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.