Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1966, Qupperneq 93
99
Allir þessir hrútar eiga ætt sína að rekja til Pjakks 31 í
Holti, sem frægur var. Hrútarnir höfðu fengið mjög góða
dóma á sýningum sem einstaklingar og Spakur og Gyllir I.
v. fyrir afkvæmi.
Hinir þrír voru ekki það reyndir að hægt væri að af-
kvæmadæma þá, en að dómi sauðfjárræktarráðunautar B. í.,
Árna G. Péturssonar, er afurðahæfni dætra þeirra góð.
Hann kemst t. d. svo að orði um dætur Leira: „Dætur
lians eru langar, sterkar og bolmiklar ær, hörkulegar og rækt-
arlegar, frjósamar og afurðamiklar. Þá má geta þess að móð-
ir Leira fékk I. v. fyrir afkvæmi og alsystir hans er afburða
ær.“
Umsögn Árna G. Péturssonar um afkvæmi Þokka er á
þessa leið: „Yfirleitt með hvíta og góða ull, sterka yfirlínu,
góða brjóstkassabyggingu, jafnvaxin og holdgóð. Dæturnar
eru ágætlega frjósamar og mjólkurlagnar."
Þokki og Leiri lifa enn við góða heilsu og þótti því rétt
að taka þetta fram, því líkur eru til þess að þeir verði sterkir
ættfeður og vonandi eiga þeir eftir að sanna ágæti sitt.
í desember 1964 var hafist handa um sæðingar frá stöð-
inni. Það haust voru sæddar um 7 þús. kindur.
Nokkuð hefur verið unnið úr þeim upplýsingum, sem
fengizt hafa í gegn um skýrslur þær, sem bændur þurfa að
skila um þær ær, sem sæddar voru á viðkomandi búi.
Arangur sœðinganna.
Árangur sæðinganna í liinum einstöku skýrslum, sem not-
færðu sér þessa starfsemi og skýrslum skiluðu til stöðvarinn-
ar, voru sem hér segir:
Suður-Þingeyjarsýsla .... 51.6% ánna festu fang
Eyjafjarðarsýsla .......... 48.4% — — —
Skagafjarðarsýsla ......... 53.8% — — —
Austur-Húnavatnssýsla . . 48.6% — — —
Meðaltal, vegið ........... 50.5% — — —
I þessu nreðaltali eru hrútar sem notaðir voru á Búfjár-
T