Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 15

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 15
17 skeið í meðferð heimilisdráttarvéla, svo sem áður hef- ur verið gert í þeim búnaðarfélögum á sambandssvæð- inu, sem þess óska.“ Tillagan samþ. í einu hljóði. b) Um búfjártryggingar var svohljóðandi tillaga sam- þykkt samhljóða: „Fundurinn leggur til að samþykkt verði það form á tryggingum, sem felst í frumvarpi hinnar stjórnskip- uðu nefndar, um eitt heildartryggingarfélag fyrir allt landið, fremur en félag í hverjum hrepp eins og til er ætlazt í breytingartill. frá Búnaðarþingi. Auk þessa leggur fundurinn til að upp í þetta frum- varp (þ. e. frumvarp stjórnskipuðu nefndarinnar) verði tekin eftirfarandi atriði: 1. Að framlag Ríkissjóðs verði kr. 3 milljónir í stað 2 milljóna. 2. Lambalát séu bótaskyld og haustlömb, sem sannan- lega fara frá réttum til áramóta. 3. í stað þess, sem fram er tekið í 17. gr. um fram- kvæmdastjórn félagsins, komi, að stjórn félagsins ákveði um framkvæmdastjórn og framkvæmda- stjóra félagsins. 4. Þá telur fundurinn það koma mjög til álita, hvort eigin áhætta eigi nokkur að koma til greina við tjónbætur vegna lambaláts. Varðandi fyrirkomulag trygginganna vill fundurinn taka þetta fram: Með heildartryggingu fyrir allt landið telur fundurinn að fáist ódýrastar tryggingar, meiri útjöfnun bóta- fjár og öryggi fyrir sem fyllstum bótagreiðslum. Rekstur allur verður einfaldari og þar með minni kostnaður.“ c) Um fiskirækt var eftirfarandi tillaga samþykkt sam- hljóða: „Fundurinn telur sjálfsagt að taka boði veiðimála- stjóra um laxaseiði x Grímsá og Eyvindará. Enn frem- ur felur fundurinn stjórninni að hafa áfratnhaldandi 2

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.