Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 67
69
Eins og getið er um hér- að framan eru þrjú nautgripa-
ræktarfélög á svæðinu nýstofnuð. Þau eru öll óháð búnaðar-
félögum sveitanna. Það ár sem nú er að líða verður fyrsta
starfsár þeirra alfra.
Formaður félagsins í Norðfirði er Björn Bjarnason,
Skorrastað. Þetta félag á 4 ára naut, sem er náskylt f)raupni,
sem notaður er í Hjaltastaðarþinghá, keypt frá Oddgeirshól-
um í Árnessýsfu. Naut þetta var keypt inn í sveitina af
Guðjóni Ármann, Skorrastað. Norðfirðingar hafa verið
furðu seinir til að hefjast handa um að kynbæta nautgripi
sína, þar sem þar hefur þó verið mikil mjólkursala um lang-
an tíma. Þrátt fyrir þetta eru til í Norðfirði margar álitlegar
kýr. Enginn vafi er þó á því, að hægt er að bæta kýr þar
með kynbótum ekki síður en annars staðar.
Formaður Nautgriparæktarfélags Austur-Valla er Axel
Sigurðsson, Gíslastaðagerði. Fyrsta verk þess félags var að
kaupa nautið Rjóð ti • i lvanneyri. Rjóður er 4 ára gamall.
Hann var áður eign Bubótarbúsins á Egilsstaðakauptúni.
Hann er af ága'tu kyni, sonur Freys og Rjóðar 220, Hvann-
eyri, einnar álitlegustu kýr í Borgarfirði syðra. Telja má
víst að Vallamenn geti gert miklar kynbætur með þessu
nauti.
Nautgriparæktarfélagið í Fellum byrjaði starfsemi sína
með því að kaupa naut ættað úr Búbótarbúinu í Egilsstaða-
þorpi, undan Rjóð, sem áður er getið og Mús, sem er ágæt
kýr. Formaður félagsins í Fellum er Guðmundur Jónsson,
Refsmýri.
Nokkrir einstaklingar hafa á síðari árum sótt naut í aðra
landshluta til kynbóta og sýnt með því áhuga fyrir að bæta
kýr sínar. Fyrir nokkrum árum keypti Sveinn Jónsson,
Egilsstöðum naut frá Grund í Eyjafirði, sem Grundi nefnd-
ist. Undan Grunda eru til margar ágætar kýr bæði á Egils-
stöðum og víðar. Nú á Sveinn naut frá Setbergi við Hafnar-
fjörð. Til Borgarfjarðar kom fyrir hálfu öðru ári naut frá
Hlíð í Gnúpverjahreppi. í Borgarfirði hefur verið einhver