Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 64
66
Nautgriparœktarjélag SkriÖdœla.
Það starfar í tengslum við búnaðarfélag hreppsins en
hefur sérstaka stjórn. Jón Hrólfsson, Haugum, er formaður
þess. Félagið á nautið Spak frá Hryggjum, Dyrhólahreppi
í Mýrdal. Hann er 5 vetra gamall, svartskjöldóttur að lit og
óvenjulega vel byggður. Fyrstu kvígur undan honum báru
á sl. ári, ekki er enn hægt að dæma um, hvernig þær muni
reynast til mjólkur. Allir, sem alið hafa upp kálfa undan
Spak eru sammála um það, að kálfar undan honum séu
þroskameiri og hraustari heldur en kálfar undan öðrum
nautum. Sama reynsla hefur fengizt hér á Austurlandi af
öðrum nautum, sem hér hafa verið notuð, ættuðum úr Mýr-
dal. Mýrdalsstofninn er líka þekktur fyrir það, hve vel
byggður hann er, eftir því sem gerist með íslenzka nautgripi.
Mjög er athugandi fyrir þá, sem ala upp nautgripi til lóg-
unar að hafa naut af þessum stofni. Kýr í Skriðdal eru ekki
illa gerðar en nytlágar. Full þörf er fyrir Skriðdælinga að
koma sér upp mjólkurlagnari kúm, ekki sízt, ef þeir hyggja
á mjólkursölu í auknum mæli, þegar mjólkurbú verður
komið upp á Egilsstöðum.
Nythæsta kýr í félaginu er Belgja 2, eign Zóphóníasar
Stefánssonar, Mýrum, hún hefur mjólkað að meðaltali á ári
þrjú sl. ár 3774 kg. mjólk með 3.95% fitu, það eru 14914
fitueiningar. Belgja 2 var eina kýrin í Skriðdal, sem fékk I.
verðlaun á kúasýningunni á síðasta sumri.
Nautgriparœktarfélag Eiðaþinghár.
Það starfar sjálfstætt, og er Einar Björnsson, Mýnesi, for-
maður þess. Þátttaka í félaginu er fremur lítil. Félagið á
nautið Brand frá Garðakoti, Dyrhólahreppi, sem verður 5
ára n. k. haust. Fyrstu dætur Brands eru nýlega bornar. Auk
Brands hefur verið notað á vegum félagsins annað naut,
eign Snæþórs Sigurbjörnssonar, Gilsárteigi, Smári frá
Hvanneyri 4 ára gamall. Hann er sonur Ereys, sem var eign
Nautgriparæktarsamb. Borgarfjarðar, og Mjallhvítar 244,