Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 72
74
Hrútunum var skipt í 3 verðlaunaflokka.
I. heiðursverðl., 200.00 kr., hlutu 22 hrútar.
I. verðl. A, 100.00 kr., hlutu 32 hrútar.
I. verðl. B, 75.00 kr., hlutu 39 hrútar.
Hrútunum var skipað í 4 aldursflokka 1 v., 2 v., 3 og 4
vetra og 5 v. hrúta og eldri. Heiðursverðlaunahrútunum í
hverjum aldursflokki var svo raðað upp eftir gæðum.
Þrenn verðlaun voru veitt fyrir ærhópana.
I. verðlaun, 500.00 kr., hlaut bezti hópurinn.
II. verðlaun, 300.00 kr., hlaut næst bezti hópurinn
III verðlaun, 200.00 kr., voru veitt hinum fimm.
Þær þrjár sveitir sem sýndu jafn bezta hrúta fengu sér-
staka viðurkenningu, 1000.00 kr., 500.00 kr og 250.00 kr.
verðlaun.
Þá valdi dómnefndin tir þrjá beztu hrúta sýningarinnar
og var eigendum þeirra afhent skrautrituð skjöl með
álímdri mynd af viðkomandi hrút undirrituð af dómnefnd
og innrömmuð. Sams konar skjal var veitt fyrir bezta ær-
hópinn. Geta má þess að Steinþór Eiríksson, vélvirki, skraut-
ritaði skjöl þessi endurgjaldslaust.
Kl. 2 á sunnudag var sýningin opnuð fyrir alnrenning af
Þorsteini Jónssyni, form. btinaðarsambandsins, að viðstöddu
fjölmenni. Álitið er að 400 til 500 manns hafi sótt sýning-
una. Flestir gestanna voru úr sveitunum á Héraði en þó
voru all-margir mættir úr flestum sveitum allt frá Vopna-
firði til Álftafjarðar. Flest voru þetta bændur og bænda-
synir auk annarra áhugamanna um sauðfjárrækt. Vitað var
að nokkrir höfðu hætt við að koma á sýninguna vegna slæms
veðurútlits á sunnudagsmorguninn, þ. á. m. bændur úr
Þistilfirði. Allmargir Vopnfirðingar höfðu ýmist hætt við
að fara eða snúið við á leiðinni, því að á daginn kom að veð-
ur spilltist og gerði ófærð á norðurheiðum.