Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1973, Síða 10
10
LANDSBÓKASAFNIÐ 1972
17. júní 1940; Minningarljóö eftir móður tónskáldsins; Alþingishátíðarkantötu 1930;
Dansinn í Hruna; Munkana á Möðruvöllum o. m. fl.
Sendibréf til Björns Hallssonar á Rangá frá þeim bræðrum Guðmundi Jónssyni frá
Húsey og Jóni Jónssyni í Sleðbrjót. Gjöf frá börnum Björns: Eiríki og Hólmfríði,
húsfreyju á Rangá.
Handrit úr eigu sr. Sigurðar Einarssonar í Holti. Einar Magnússon, fyrrv. rektor,
afhenti.
Ljóðmæli Jóns Jónatanssonar skálds í Winnipeg, vélrit. Sr. Benjamín Kristjánsson
afhenti, en hann hafði fengið frá Gunnari Erlendssyni organista í Winnipeg.
Af keyptum handritum skal þessara getið: Úr dánarbúi Árna Pálssonar verkfræð-
ings voru m. a. fengin Catalogus yfir Bækur Konferntsráðs B. Thorsteinssonar. Skrif-
aður 1857. Með hendi Páls stúdents Pálssonar; Um mögulegleika akuryrkju á íslandi,
einnig með hendi Páls stúdents; Skýrsla Magnúsar Stephensens dómstjóra um Jörund-
armál o. fl.
Rímreglur með hendi Odds Hjaltalíns læknis voru keyptar af Karli Guðmundssyni
fyrrum stöðvarstjóra í Flatey um hendur Baldurs Pálmasonar útvarpsfulltrúa.
Rímur af Tristan og Indíönu eftir Níels Jónsson skálda. Eiginhandarrit keypt af
Gunnari Helgasyni á Sauðárkróki um hendur Helga Tryggvasonar hókbindara.
Ágrip eitt af Lyfs sögu og Háttu[m] Hauskuldar Jónssonar — í eiginhandarriti
Bólu-Hjálmars, keypt af Ársæli Júlíussyni fulltrúa í Reykjavík.
Enn voru keypt handrit af Kristni Bjarna Ogmundssyni, Guðjóni Guðjónssyni forn-
bóksala og Þorsteini Matthíassyni kennara, án þess að þeirra handrita verði hér nánar
getið.
Eftirtaldir aðilar liafa afhent Landsbókasafni handrit, án þess að um þau verði
frekara rætt: Bergþóra R. Isaksdóttir frá Fífuhvammi, Guðmundur Jónsson, fyrrv.
skólastjóri, Haraldur Pétursson, fyrrv. húsvörður, Haraldur Sigurðsson bókavörður,
Helgi Tryggvason bókbindari, Indriði Indriðason ættfræðingur, Reykjavík, Jakob
B. Bjarnason, Síðu, Refsborgarsveit, Sr. Jón Isfeld, Búðardal, Magnús Finnbogason
smiður, Nanna Ólafsdóttir bókavörður, Sigfús M. Johnsen, fyrrv. bæjarfógeti, Reykja-
vík, sr. Skarphéðinn Pétursson, Höfn í Hornafirði, Svafa Þorleifsdóttir, Þjóðskjala-
safn íslands, Reykjavík.
Öllum gefendum handrita eru hér færðar beztu þakkir.
ÞJÓÐDEILD ] þjóðdeild unnu á árinu auk Ólafs Pálmasonar deildarstjóra
Haraldur Sigurðsson bókavörður (til septemberloka), Laufey
Þorbjarnardóttir stud. philol. (júní-sept.), Nanna Bjarnadóttir stud. philol. (í hálfu
starfi okt.-des.) og Guðný Sigurðardóttir aðstoðarbókavörður (nóv.-des.) Ennfremur
unnu stúdentar á 1. stigi í bókasafnsfræðum nokkra æfingavinnu í okt.-des. Brynj-
ólfur Þorvarðsson vann að röðun smáprents og annars þjóðdeildarefnis.