Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1973, Page 130
130
HVÍLA GJÖRÐI HLAÐSÓL
En þótt orðin séu auðskilin er vandséð hvert efnið stefnir, þegar maður er fyrst
kynntur fyrir konu sem hvílir og í næstu andrá fer skáldið að skera mat og er kominn
út í brauðbakstur fyrr en varir og talar í næsta andartaki um bylji og þá náttúrufegurð
°g snjó á fjöllum, síðan um menn á ferð og endar með að krefja einhvern um feld og
hvorki sögð deili á þeim sem feldinn hefur né feldurinn tengdur á nokkurn hátt við
það sem á undan fer. Sá sem skrifaði vísuna forðum hefur væntanlega kunnað á henni
einhver skil, en nútíðarmanni er hún næsta torskilin, og ekki datt mér í hug, þegar ég
las hana fyrst, að ég yrði nokkurn tíma nokkurs frekara vís um hana. Þó rakst ég
síðar í þjóðsögusafni Sigfúsar Sigfússonar á stutta sögu, sem vert er að bera saman
við þessa gömlu vísu.
Sagan er til í tveimur handritum Sigfúsar, Lhs. 2580 4to og Lbs. 3978 4to, auk
þess sem hún er í prentuðu útgáfunni,18 og virðist sambandið þannig, að Lbs. 2580
4to sé elzt og textinn þar upphaflegastur, þótt Sigfús hafi þá þegar breytt stíl á sög-
unni, eins og fram kemur af greinargerð hans. í Lbs. 3978 4to er orðalagi vikið við,
og hefur Sigfús þar stílfært söguna á ný. Síðar hefur verið krotað í þetta handrit með
penna og breytt örlítið stafsetningu og orðalagi, vafalaust í tilefni prentuðu útgáf-
unnar, en þar er texti með fáeinum undantekningum samhljóða Lbs. 3978 4to eftir
að breytingarnar voru gerðar. Sögumaður Sigfúsar er Björgvin Jónsson unglingur,
eftir Jóhönnu Stefánsdóttur móður sinni í Tunghaga. Björgvin hét fullu nafni Pétur
Björgvin og kallaði sig síðar Pétur B. Jónsson. Hann var fæddur 1889, sonur hjón-
anna Jóns Péturssonar og Jóhönnu Stefánsdóttur, sem bjuggu í Tunghaga, þar til
Jón lézt 1905 og Jóhanna brá búi og fluttist þaðan burt árið 1906.19 Væntanlega hef-
ur Sigfús skrifað söguna upp á fyrsta áratug þessarar aldar og raunar ekki síðar en
1906, ef taka má orðalag greinargerðarinnar í Lbs. 2580 4to bókstaflega. Hér er sag-
an prentuð í báðum gerðum Sigfúsar.