Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1951, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.02.1951, Blaðsíða 29
Launakjaranefnd V.R. Standandi f. v.: Bjarni HalldórKSon, ólafur Stefánsson, Njáll Símonarson, Daníel Gíslason ojí Einar Elíasson. Sitjandi: I»órir Hall form. 0«; Björgjiilfur Si^urðsson. sömu verðlagsupjíbótar og Alþingi bafði samþykkt og gilti það samkomulag frá 1. janúar til 1. apríl 1940. Þegar vitað var að Alþingi 1940 myndi afgreiða sem lög frumvarp um greiðslu verðlagsuppbótar á laun opinberra starfsmanna, verkamanna, sjómanna og iðnaðarmanna, beitti stjórn og launakjaranefnd V.R. sér fyrir því, að borið yrði upj) á því þingi sams- konar frumvarj) hvað snerti verðlagsuj)j)bót á laun starfsmanna í verzlunum og skrifstofum, og \ar þá- verandi alþingismaður Thor Thors fenginn til að bera frumvarpið fram. Frumvarj)ið fékk það góðar undir- tektir, að tryggt þótti að það yrði afgreitt sem lög, en þá skeður það óvænta. Þar eð frumvarpið hafði komið fram í seinna lagi á þessu þingi, þurfti það að fá afgreiðslu með afbrigðum frá þingskö])um. For- maður Framsóknarflokksins og tveir samherjar hans fnndu hvöt hjá sér til þess að stöðva þetta réttlætis- mál verzlunarfólks, og neituðu um afbrigði frá þing- sköpum. Þá var það að stjórn V.R. sendi þáverandi ríkisstjórn skýrslu um málið, og fór fram á það, að gefin yrðu út bráðabirgðalög þar sem ákveðin yrði saina verðlagsuj)])bót til verzlunarfólks og Alþingi hafði samþykkt að greiða o])inberum starfsmönnum. Enn á ný varð verzlunarfólk fvrir vonbrigðum, því ríkisstjórnin neitaði að gefa út þessi bráðabirgðalög á þeim forsendum, að ráðherrarnir Eysteinn Jónsson og Hermann Jónasson fengust ekki til að gefa samþykki sitt — en til þess þurfti samþykki allra ráðherranna. Ut af þessu máli urðu talsverðar blaðadeilur —— og kenndu þá hvorir öðrum um málalokin. Rlað þáver- andi félagsmálaráðherra hvatti verzlunarmenn til þess að ganga í Alþýðusambandið, því að ríkisstjórnin hafi séð sér fært að neita um kjarabætur þessar, þar eð verzlunar- og skrifstofufólk liafði ekki verkfallsrétt- inn á bak við sig. Þegar hér var komið sögu (á miðju ári 1940) var farið að bera talsvert á aukinni dýrtíð, og sem að sjálfsögðu kom ekki hvað sízt niður á verzlunarstéttinni. Grunnlaun verzlunar- og skrifstofu- fólks voru j)á talsvert lægri heldur e)i laun ojrinberra starfsmanna, sem nú fengu greiddar verðlagsuppbæt- ur frá 1. janúar 1940. Þessi meðferð málanna hjá hinu opinbera varð til þess -að stjórn og launakjaranefnd V.R. gerði samn- inga við atvinnurekendur um greiðslu verðlagsupji- bótarinnar. Var leitað til hinna ýmsu sérgreinafélaga innan Verzlunarráðs Islands, svo og til ýmissa fvrir- tækja sem stóðu utan við Verzlunarráðið, og brugðu þessir aðilar yfirleitt fljótt og vel við og undirskrif- uðu samninginn. Má með sanni segja að þar hafi vin- samlegt samstarf vinnuveitenda og vönnuþiggjenda komið einna bezt í ljós. Verðlagsuppbætur þær, sem hér hefur verið vikið að, héldust síðan óbreyttar til ársins 1946, en þá verða merk tímamót í sögu félagsins, og skal nú vik- ið að þeim sérstaklega. Snemma árs 1945 var á almennum félagsfundi kjör- in nefnd til þess að semja frumvarj) að launakjara- samningum fyrir félagið. Allt verzlunarfólk var flokk- að í 16 mismunandi starfsflokka og laun ákveðin fyrir hvern starfsflokk. Nefnd þessi leitaði sér upplýsinga um kauj) og starfskjör verzlunarfólks hjá ýmsum fyr- irta'kjum, auk þess sem samskonar launakjarasamn- ingar Norðurlandanna voru hafðir til hliðsjónar. Um leið og unnið var að þessu frumvarjn, voru stofnaðar sérdeildir innan félagsins — afgreiðslumannadeild, skrifstofumannadeild og sölumannadeild. Nefnd sú sem unnið hafði að frumvarj)inu lagði það nú fyrir stofnfundi deildanna. og var frumvarpið samþvkkt, en ])ó með nokkrum breytingum frá hverri deildarstjórn. Þá var einnig gerð sú breyting á skipun launakjara- nefndar, að framvegis skyldu eiga þar sæti formenn sér- deildanna og auk þeira tveir menn skipaðir af stjórn- inni. Fulltrúi afgreiðslumannadeildar varð þannig Björgúlfur Sigurðsson, frá skrifstofumannadeild Bald- ur Pálmason, frá sölumannadeild Carl Hemmin Sveins og frá stjórninni þau Adolf Björnsson o Gyða Halldórsdóttir. Var Adolf Björnsson formað- ur nefndarinnar en Carl Hemming Sveins ritari. Þess- ari nýskij>uðu launakjaranefnd var nú fengið í hend- ur fullt umboð til að semja um kaup og kjör verzl- unarfólks í Reykjavik. í nóvember 1945 var þessi launakjaranefnd tilbúin til viðræðna við atvinnurek- endur, en sökum jóla-anna var ekki hægt að hefja samninganmleitanir fyrr en í byrjun janúar 1946. FRJÁLS VERZLUN 29 b£i bc

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.