Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1961, Blaðsíða 2

Frjáls verslun - 01.02.1961, Blaðsíða 2
Mór Elísson, hagír.: Vandamal sjávarútvegsins, með tillili fil þróunar undanfarinna ára Már Elísson, hagfræðingur, hélt erinili það, seni liér fer á eftir á fundi í Hagfræðafélagi Islands í janúar sl. (iaf hann Frjálsri Verzlnn góðfúslega leyfi til að birta erindið. Ég hefi hugsað mér að ræða hér einkum vanda- mál hagkvæms rekstrar hjá sjávarútveginum; þ. e. skilyrði þess, að ákveðin atvinnugrein — í þessu tilfelli útgerð — fái þróazt og starfað eðlilega og á sem hagkvæmastan hátt; í þessu sambandi mun þróun þjóðfélagsmála undanfarinna ára mjög höfð í huga. Af þessum sökum er ekki ætlunin að beina umræðunum að þessu sinni inn á þá braut að leggja mikla áhrezlu á tillögur til úrbóta um helztu rekstrarvandamál útgerðarinnar. Flestir vita að meira eða minna leyti, hvað gera þarf. Ég mun því öllu fremur leitast við að ræða vandamálin, sem á bak við liggja, — ]). e. a. s. or- sök þess, að ekki hefir undanfarin ár verið mögu- leiki eða hvöt fyrir útvegsmenn og aðra stjórnendur sjávarútvegsfyrirtækja að taka upp hagkvæman rekstur. miðað við það, sem eðlilegir tímar krcfjast. Sú merking, sem ég tel að felist í „rationaliser- ingu“, en sumir vilja nefna þetta hagsýslu, er eink- um aukin hagkvæmni í rekstri þeirra atvinnutækja og annarra starfskrafta, sem fvrir hendi eru hjá ákveðnu fyrirtæki, með það fyrir augum að auka afköstin og/eða minnka tilkostnaðinn — eða með öðrum orðum að ná meiri árangri með sömu fyrir- höfn, og þá einnig hlutfallslega meiri aukningu afrakstrar en fyrirhafnar, þegar um það er að ræða. Efnahagskerfið skapar luidirstöðuna Benda verður á það, að rammi sá eða umgerð, sem þjóðfélagið býr atvinnuvegunum hverju sinni, getur haft úrslitaáhrif á þróun þeirra og rekstur, og má segja, að ef fyrirtæki á að geta þróazt. eðli- lega, verði ákveðið jafnvægi að ríkja í þjóðfélags- málunum almennt og í efnahagsmálum sérstaklega. Ef slíkt ástand ríkir, má búast við jafnari og betri rekstri fyrirtækja, hófsamari en jafnframt arðbær- ari fjárfestingu og hraðari hagvexti. A hinn bóg- inn er það staðreynd, að breyttum þjóðfélagshátt- um til hins betra eða verra, fylgja breytingar á afstöðu fyrirtækisins og stjórnanda þess til þeirra, sem væntanlega koma þá fram í breyttum rekstrar- háttum. Þannig má segja, að óstjórn eða ofstjórn efnahagsmálanna neyði stjórnendur fyrirtækja til að gera ýmsar gagnráðstafanir, sem í sjálfu sér eru ekki til þess líklegar að stuðla að því, að ofan- nefndum markmiðum hagkvæms rekstrar verði náð. Það má því telja augljóst, að þau vandamál, sem hér um ræðir, eru ekki neitt hégómamál, heldur ástand, sem skapazt hefir á löngum tíma og nátengt er hinni almennu þróun þjóðfélagsmála undanfar- in ár. Vinur minn benti mér á það fyrir nokkru, að fyrstu merki þessa öfugstreymis mundu hafa kom- ið í ljós á árunum um og cftir 1930, er heiftúð- ugur áróður ýmissa einstaklinga og blaða gegn sjávarútveginum hófst. Þessi áróður hafði tilætluð áhrif í þá átt að breyta áliti almennings útveginum í óhag. Álit margra þáverandi al])ingismanna og annarra ráðamanna var sjávarútveginum og mönn- um þeim, sem við hann störfuðu, andsnúið fyrir. Þessi afstaða almennings og landsfeðranna bætt- ist ofan á áhrif kreppunnar miklu, og breyttist ekki fyrr cn of seint eða á árinu 1939, þegar gengis- breyting var framkvæmd. Þetta reyndist sjávar- útveginum sérstaklega óhagstætt og þar af Ieiðandi öllu landsfólkinu, og leiddi til þess, að við upphaf stríðsins var fiskiskipastóllinn mestmegnis gömul, úrelt og afkastalítil skip, og höfðu litlar endurnýj- FKJÁLS VERZLUN 2

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.