Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1961, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.02.1961, Blaðsíða 17
Helgi S. Jónsson: Keflavík og Njarðvíkur staðir sem eiga ‘verzlunarfrelsinu vöxt sinn og vid'gang að þakka Keflavík og Njarðvíkur eru við Stakksfjörð, sem gengur inn úr Faxaflóa, á milli Hólmsbergs og Vogastapa. Keflavíkur er að litlu getið í sögunni. Fornsögurnar koma þar hvergi við og kunna ekki frá neinum stórmerkjum að greina. Steinunn gamla, landnámskona Rosmhvalaness, fór þar fram hjá, út á Miðnesið, að því talið er; henni hefur ekki litizt búsældarlega á víkina þá. Það er fyrst í átökunum um verzlunina, milli enskra og þýzkra, og siðar danskra, sem Keflavík kemst á söguspjöldin. 011 forsaga Keflavíkur er mjög óljós, nema það sem finna má í gömlum verzlunarplöggum i kóngs- ins Kaupinhafn, og að nokkru hér heirna, frá síðustu öld. Þær heimildir greina mest frá ríkisdölum og skildingum — gróða og tapi — en ekki lífi fólks- ins, starfi þess og stríði. 1 gömlum skrifum er þess getið, að um árið 1700 hafi verið eitt býli í Kefla- vík og þar búið 6 sálir, sem inntu það í afgjald kotsins að gæta lokaðra kaupmannabi'iða að vetri til. Þrátt fyrir búsifjar af völdum einokunarverzl- unar Dana, tók Keflavík eftir þetta að vaxa, þó að hægt færi. Verzlunin hafði sitt aðdráttarafl, og fiskisæld var þar nálæg, þótt oft. væri harðsótt á miðin. Um aldamótin siðustu eru komin 90 hús í Keflavík og íbúar um 400. Þegar H. P. Duus kveður Keflavík, 1. marz 1920, selur allar eignir sínar og fer af landi burt, þá fer fyrst að rætast úr og fólki að fjölga. Mest var það þurrabúðarfólk, scm átti allt sitt undir sjó og afla. Bændur til lands og sjávar bjuggu í Njarðvíkum og voru gjarnan bet- ur stæðir en hinir, sem byggðu mölina í Keflavík. Nú er orðið svo margt líkt með skyldum, að dag- farslýsing annars staðarins á að mestu við hinn. Njarðvíkur Ytri* og Innri-Njarðvík eru sunnan við Kefla- vík. Njarðvíkur eru ört vaxandi þorp, sem nú er nálega samvaxið Keflavík, og er landfræðilega í rauninni einn og sami staður, á sama hátt og Sel- tjarnarnes og Kópavogur mega heita samvaxin Reykjavík. Njarðvíkur hafa lengi verið hreppur út af fyrir sig, en voru áður sameinaðar Keflavík- urhrepp. Njarðvíkurbændur eiga nær helming lands- ins, sem Keflavík stendur á, og hafa af því leigu- tekjur nokkrar, og vaxandi, eftir því sem Keflvík- ingar auka verðmæti landsins. Njarðvíkingar liafa sinn eigin barnaskóla og leik- velli. Þeir hafa stærsta samkomuhúsið á Suður- nesjum, og einn bezta knattspyrnuvöll landsins. Þar er skipasmíðastöð, sem reynir nýjar leiðir og gegnir að mörgu leyti forustuhlutverki meðal skipa- smíðastöðva landsins. Þar er kaupfélag og verzlun, þar er fiskimjölsverksmiðja og tvö frystihús — þar er og lítt nothæfur, stór hluti af landshöfn í Kefla- vík og Njarðvík — ! TJtgerð og fiskveiðar eru máttarstoðir athafnalífsins, þar eins og í Keflavík. Báðir staðirnir eru ein kirkjusókn, eitt læknis- hérað og hafa margt annað sameiginlegt: Gagn- fræðaskóla, póst og síma, slökkvilið, rafveitu, áætl- unarferðir, sparisjóð og fjölmargt annað. Njarð- víkur eiga allmikla sögu; ])aðan hafa rnargir merkir menn komið, og miklir framfara- og dugnaðar- menn liafa búið þar, menn sem settu svip sinn á þróun útgerðar og fiskveiða — enda gaf siglinga- guðinn Njörður, víkunum nafn sitt. Um eitt skeið bjó sálmaskáldið Hallgrímur Pét- ursson í kotinu Bolafæti í Njarðvíkum, og hafði þá einhverja sultarvinnu hjá dönsku verzluninni í Keflavík, áður en hann varð prestur að Hvals- nesi. Byggðin í Njarðvíkum stendur báðum megin þjóðvegar unr Suðurnesin, en þjóðvegur sá liggur frjá.ls verzlun 17

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.