Frjáls verslun - 01.02.1961, Side 9
og væri reiðubúin að beita sér fyrir í'lutningi
lagafrumvarps á Alþingi þar að lútandi.
Var þá þegar hafizt handa um samningu frum-
varps og sendi stjórn sparisjóðsins tillögur sínar
um efni lagafrumvarpsins til ríkisstjórnarinnar
um miðjan marzmánuð. Að samningu þess unnu
prófessor Armann Snævarr, Pétur Sæmundsen,
viðskiptafræðingur og Ilöskuldur Olafsson, spari-
sjóðsstjóri. Var síðan fjallað um það af sér-
stakri nefnd, er ríkisstjórnin skipaði, og enn-
fremur var það sent stjórnum Kaupmannasam-
taka Islands, Verzlunarráðs Islands og Félags
ísl. stórkaupmanna til athugunar og umsagnar.
Náðist full samstaða meðal þessara aðila um
efni og innihald lagafrumvarps, er ríkisstjórnin
síðan lagði fram á Alþingi í maíbyrjun.
Frumvarpið fékk greiða meðferð Alþingis og
var það samþykkt óbreytt og afgreitt sem lög
28. maí. Var það samþykkt með atkvæðum allra
alþingismanna að einum undanskildum. Hinn
10. júní voru lögin staðfest af forseta Islands
og gefin út sem lög nr. 46, 1960.
Egill Guttormsson, form. bankaráðs Verzlunarbankans
Hinn 14. júní 1960 boðaði stjórn Verzlunar-
sparisjóðsins til l'undar ábyrgðarmanna og sóttu
hann um 180 ábyrgðarmcnn. Var þar einróma
samþykkt að neyta heimildar laganna og stofna
hlutafélag er tæki við rekstri Verzlunarspari-
sjóðsins og bæri heitið Verzlunarbanki Islands
h.f. Hófst þá hlutafjársöfnun og var ákveðið að
hlutafé bankans skyldi vera rúmar 10,2 millj.
kr. Var henni lokið 10. janúar sl. og var hvergi
nærri unnt að verða við þeirri eftirspurn, sem
var eftir hlutafé.
Jafnframt fól stjórn sparisjóðsins sömu mönn-
um og önnuðust samningu lagafrumvarpsins að
Stjórn bankaráðs Verzlunarbankans. — Frá vinstri: Pétur Sæ-
mundsen, Egill Guttormsson og Þorvaldur Guðmundsson
vinna að undirbúningi samþykkta fyrir félagið
og reglugerðar fyrir bankann. A stofnfundinum
hafði prófessor Ármann Snævarr, háskólarektor,
framsögu fyrir þeim, og voru þær samþykktar
þar með þeirri einu breytingu, að bankaráði var
heirnilað að bjóða út hlutafjárauka að upphæð
2 millj. kr., sem starfsmenn félaga í Kaup-
mannasamtökum Islands, Verzlunarráði íslands
og Félagi íslenzkra stórkaupmanna hefðu rétt
til að skrifa sig fyrir.
I bankaráð voru kjörnir Egill Guttormsson,
stórkaupmaður, Þorvaldur Guðmundsson, for-
stjóri, og Pétur Sæmundsen, viðskiptafræðingur.
Þeir hafa allir átt sæti í stjórn Verzlunarspari-
sjóðsins frá upphafi.
Varamenn í bankaráð voru kjörnir Magnús
J. Brynjólfsson, kaupmaður, Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, stórkaupmaður og Björn Guðmunds-
son, kaupmaður. Endurskoðendur voru kjörnir
Guðmundur Benediktsson héraðsdómslögmaður
og Jón Helgason, kaupmaður.
Fundinn sóttu um 350 manns og fór hann í
hvívetna hið bezta fram.
A fyrsta fundi bankaráðsins hinn 17. febrúar,
var Egill Guttormsson kjörinn formaður og Þor-
valdur Guðmundsson varafonnaður. Þá var
Höskuldur Olafsson ráðinn bankastjóri, Lárus
Lárusson, aðalbókari og Björgúlfur Bachmann,
aðalgjaldkeri. Allir þessir menn liafa starfað við
Verzlunarsparisjóðinn frá upphafi.
Verzlunarbankinn mun taka til starf'a síðari
hluta marzmánaðar næstkomandi, en áður en
hann getur liafið starfsemi sína þarf helmingur
lofaðs hlutafjár að vera innborgaður og sam-
þykktir og reglugerð þurfa að hafa hlotið stað-
festingu viðskiptamálaráðherra, sem bankinn
heyrir stjórnarfarslega undir.
FRJÁLS VEHZLUN
9