Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 5

Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 5
Hún sýnir með öðrum orðum verðhlutfallið milli innlendrar framleiðslu og þeirrar erlendu vöru, sem við er keppt. Eins og vænta mátti, var samkeppnis- vísitalan fyrir neðan 100 fyrir flestar vörur jafnvel áður en genginu var breytt. Er þetta áreiðanlega að einhverju leyti afleiðing þess, að íslenzkir neyt- endur kaupa oft að öðru jöfnu frekar erlendar vörur en íslenzkar. Verða því íslenzku vörurnar að vera ódýrari, ef þær eiga að halda veruleguin hluta markaðsins. Eftir gengisbreytinguna reiknaði nefndin út nýjar samkeppnisvísitölur iðnaðarins á grundvelli hins nýja gengis. Kom þar greinilega í ljós, að gengis- breytingin bætti samkeppnisaðstöðu iðnaðarfyrir- tækja mjög verulega. Lækkaði samkeppnisvísitalan á flestum vörum um 10—20%, eftir því hve mikill þáttur erlendi kostnaðurinn var í verði vörunnar. Má t. d. nefna, að samkeppnisaðstaða áburðar batnaði um 17%, bátasmíða um 18%, eldavéla um 14%, fiskumbúða 20%, botnvörpugarns 9% og vinnufata 10%. A móti þessu hefur að nokkru kom- ið frjálsari innflutningur á erlendum iðnaðarvörum. Samt held ég, að reynslan sýni það ótvírætt, að samkeppnisaðstaða iðnaðarins hcfur batnað við gengisbreytinguna og sá samdráttur, sem orðið hafði í eftirspurn eftir neyzluvörum, hefur komið meira niður á innfluttum vörum en íslenzkum. Áhrif tollverndarinnar Þær samkeppnisvísitölur, sem ég nú hef rætt um, eru allar miðaðar við markaðsverð, eins og það er bæði á innlendum vörum og innfluttum, það er að segja inn í verðið eru komnir bæði tollar og önnur aðflutningsgjöld. Nú er hins vegar hægt á grund- velli þeirra skýrslna, sem nefndin hafði yfir að ráða, að reikna út samkeppnisvísitölu fyrir söinu vörutegundir út frá þeirri forsendu, að öll aðflutn- ingsgjöhl og aðrir óbeinir skattar væru felldir nið- ur. Þctta þýðir með öðrum orðum, að öll tollvernd hyrfi úr sögunni, svo og óbeinir skattar, sem kæmu misjafnlega niður á vörutegundir. Það myndi að sjálfsögðu ekki breyta niðurstöðunni, þót.t haldið væri almennum söluskatti, er eingöngu lcgðist á við síðasta stig framleiðslukeðjunnar, eins og smá- söluskatturinn gerir nú. Niðnrfelling tollverndar- innar hefur að sjálfsögðu mjög mismunandi áhrif á einstakar vörutegundir, vegna ]>ess hvc misháir tollarnir eru. en að því mun ég víkja nánar síðar. Nokkrar mikilvægar iðnaðarvörur njóta engrar verndar, þannig að samkeppnisvísitala þeirra breytist ekki þrátt fyrir niðurfellingu aðflutnings- gjalda. Má var t. d. nefna áburð, sem hclzt óbreytt- ur í 92, bátasmíði í 93, fiskumbúðir í 63, botn- vörpugarn í 88, og er þá alls staðar reiknað með nýja genginu. Á hinn bóginn eru svo þær greinar, „Það má þó alltaf segja honum það til hróss, að hann er ekki mikið úti á kvöldin." sem nú njóta verulegrar verndar, en hjá suinum mundu eiga sér stað allverulegar hækkanir á sam- keppnisvísitölunni eða með öðrum orðum rýrnandi samkeppnisaðstaða. Þannig mundi samkeppnisvísi- tala fyrir stangasápu hækka úr 70 í 122, fyrir sjó- klæði úr 79 í 118, fyrir herraskyrtur úr 70 í 105, smjörlíki úr 77 í 104, hverfiglugga úr 64 í 102, en eins og þessar tölur bera með sér mundi samkeppnis- vísitala allra þessara vörutegunda fara yfir 100, það er að segja þær mundu að öðru óbreyttu verða dýrari en sambærilegar erlendar vörur. Samkeppnis- vísitala fyrir eftirtaldar vörur mundi einnig hækka vcrulega án þess þó að fara yfir 100: lakkmálning úr 71 í 90, eldavélar úr 62 í 93, netaslöngur úr 86 í 90, þvottaefni úr 41 í 77, leðurskór úr 61 í 95 og vinuuföt úr 38 í 64. Nú er að sjálfsögðu ekki hægt að draga þá álykt- un, að samkeppnisaðstaða þessara greina hljóti að breytast í réttu hlutfalli við þessa samkeppnisvísi- tölu, ef tollvernd væri afnumin. Fer það að sjálf- sögðu mjög eftir því í fyrsta lagi, hve hagkvæm framleiðslan er þegar orðin, og hvort hægt er að lækka verðið fram yfir það, sem þegar er orðið. í'g hef enga trú á því, að verðlagseftirlit sé til lengdar „effcktíft“ í því að ákvarða verðlag almennra iðnað- arvara út frá kostnaðarsjónarmiðuin eingöngu. Verð- hlutfall milli innlendra og erlendra vara á markaðn- um hlýtur til lengdar að ákvarðast eftir því annars vegar, livaða mat neytandinn leggur á lilutfallsgæði innlendra og erlendra vara, cn hins vegar af því, hve mikilli hlutdeild í markaðnum innlendu fyrirtækin reyna að ná. Afnám tolla mundi að sjálfsögðu breyta verulega stefnu íslenzkra iðnfyrirtækja. Þau mundu einskorða framleiðslu sína meira við þær framleiðsluvörur, sem hagkvæmastar eru og hætta að framleiða aðrar, .sem eingöngu hafa byggzt á verndaraðstöðu. Um þetta er að sjálfsögðu ekki auðvelt að spá al- mennt, þar sem möguleikar mismunandi fyrirtækja FRJÁLS VKIIZLUN .7

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.