Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 28

Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 28
þýðingu en átta tíma skammaræða úr pontunni. Eg byrjaði að fylgjast með svipbrigðum manna úr sæti mínu, og ég tók eftir því að pólski fulltrú- inn gretti sig í hvert skipti sem spánski fulltrúinn gekk fram hjá og ameríski fulltrúinn sneri upp á sig í hvert skipti sem tékkneski fulltrúinn gekk fram hjá og rússneski fulltrúinn ygldi sig í hvert skipti sem vestur-þýzki fulltrúinn gekk fram hjá. Allir voru meira eða minna forhertir á svipinn nema franski fulltrúinn; hann sneri upp á yfir- skeggið í hvert skipti sem danski fulltrúinn geklc fram hjá, en það var kvenmaður. Það þýðir ekki að mæta á alþjóðaráðstefnum án þess að gera bandalög: maður er eins og fiskur á þurru landi. Samkvæmt þeim fyrirmælum sem ég hafði haft með mér að lieiman, þá át.ti ég að vera kurteis við Bandaríkjamenn af því þeir pumpa í okkur dollurum og gefa Rússum undir fótinn af því þeir hirða af okkur karfann, en vera með hund við Fritz-Patrick af því hann var Breti. Ég átti Jíka að halda á Iofti fána norrænnar samvinnu með því að bjóða skandinavisku fulltrúunum í hádegis- verð með ræðu. A fjórða degi ráðstefnunnar flutti Fritz-Patrick aðra ræðu og kallaði mig þverhaus. Ég var að hugsa urn að spyrja hann hvort það lýsti þolin- mæði og skilningi og sáttfýsi að kalla menn þver- hausa upp í opið geðið á þeim, en þá kom fyrir atvik sem olli því að ég hafði öðrum hnöppum að hneppa fyrsta kastið. Það fór eins og eldur í sinu um salinn að kínverski fulltrúinn væri loksins kom- inn til ráðstefnunnar. Þegar maður gerir bandalög á alþjóðaráðstefn- um, þá ríður auðvitað á að gera. bandalögin við stórveldi eins og Kína en ekki fimm aura kramar- húslönd eins og Lichtenstein. Samkvæmt príslist- anum sem ég hafði upp á vasann, var Lichtenstein til dæmis alls ekki talið með í kokteilveizluút- gjöldum, en tuttugu þúsund gullfranka kokteil- veizla til heiðurs Ivína þótti skítur og ekki neitt. Ég hvessti augun á Fritz-Patrick, leysti af mér tól- bandið og þaut út lir salnum. Eg ætlaði að gera bandalag við Kína þó að það kostaði mig aleiguna. Ég leitaði uppi borðalagða fylgdarmanninn, hengdi heyrnartólið á höfuðið á honum, stillti það á enskuna sem alltaf hefur verið mín sterka hlið og spurði hvar ég gæti fundið kínverska fulltrúann. Hann sagði að hann væri niðri á baðströnd að hvíla sig eftir ferðalagið og ég tók bíl og ók í loft- inu heim á hótel. Þar gróf ég sundbolinn upp úr kofortinu, lét Jóhönnu raka á mér lappirnar og sentist niður á strönd. Baðströndin við Genfarvatn er feikilegt flæmi, eins og allar Nauthólsvíkur á íslandi hefðu verið kræktar saman og sorphreinsaðar. Kínverski full- trúinn sat undir sólhlíf kippkorn upp af skemmti- bátabryggjunni, og þegar ég gægðist undir sólhlíf- ina, þá kom upp úr kafinu að kínverski fulltrúinn var bráðmyndarleg kínversk stúlka með bráðfal- legan kínverskan fæðingarblett á bakinu. Ég tók ofan rennuhattinn og kynnti mig. „Góðan daginn, heillin,“ sagði ég. „T am the delinquent from Tce- land.“ Ég var feginn þegar stúlkan svaraði á ensku, ])ví að í flýtinum hafði ég gleymt heyrnartólinu. Ég sagði henni hvað gerzt hafði á ráðstefnunni í fjarveru hennar og það með að Fritz-Patrick hefði verið að enda við að kalla mig þverhaus, og ég bauðst til að gera bandalag við Kína og grciða atkvæði með Kína ef Kína héti mér fullum stuðn- ingi þegar ég stigi í stólinn að svara andskotans manninum. Ég fór þess ekki dulinn að heiður ís- lands var í veði. 28 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.