Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 14

Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 14
ar voru aðrir á hinum erlendu heldur en hinum innlendu mörkuðum. Af þessum ástæðum eru út- flutningssamtök og sölusamtök, sem kcppa um sölu á erlendum mörkuðum látin njóta sérstakrar vernd- ar í sambandi við slíka löggjöf. Hefur þetta stuðlað beinlínis að því, að útflutningssamtök séu byggð upp svipað þeim, sem Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna er, — frjáls samtök framleiðenda. En þetta kann að hljóma nokkuð einkennilega í eyrum þeirra, sem telja, að minnkandi áhrif sölusamtaka í út- flutningi íslendinga sé æskileg og að auka beri möguleika einstakra kaupsýslumanna á þessu sviði. Eg liefi nokkuð kynnt mér löggjöf nokkurra nágrannalanda vorra í sambandi við útflutnings- samtök, sem söluaðila. Samkvæmt þeim almennu skilgreiningum, sem notaðar eru í viðkomandi lög- um, myndi Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna flokk- ast undir það, sem nefnt er á þýzku „Export Kartel“, en það eru samtök ótilgreinds fjölda sjálf- stæðra framleiðenda, er framlciða skyldar vörur, sem eru í „Iáréttri“ samkeppni hver við aðra á hin- um erlendu mörkuðum, þ. e. a. s. samtök framleið- enda, sem framlciða vörur, sem eru svipaðar að gæðum, útliti og verði. Slík samtök geta verið laus eða föst, munnleg eða skrifleg. Fer þaö eftir réttarvenjum eða því, sem eðlilegt þykir í viðkomandi landi. Hér er um að ræða viðskiptalega og réttarlega sjálfstæða fram- leiðendur, sem geta ráðið því, hvort þeir eru kyrrir, eða hverfa úr viðkomandi samtökum. Þeir hafa svipað athafnasvið innan samtakanna og meðlimir Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hér á landi. Á slík samtök er alls ekki litið sem „hringa“, þó þau að forminu til séu skilgreind sem „kartel“. Fjöldi landa, þar á meðal þýðingarmestu útflutn- ingslönd Vestur-Evrópu, skiptist í tvo hópa, þ. e. a. s. lönd, sem hafa nokkur lagaleg takmörk í sam- bandi við kartelamyndun innanlands, en láta út- flutningskartela algjörlega afskiptalausa, og svo lönd sem hafa strangar reglur um innanlands- kartela, en sérákvæði í sambandi við útflutnings- kartela. Þessi sérákvæði eru venjulega varðandi rétt til að mynda slík samtök eða í sambandi við reglur sem eiga að fyrirbyggja misnotkun samtak- anna. Bandaríki Norður-Ameríku Samkv. bandarísku útflutningslögunum „Practice and procedure under the export trade act. G. P. 0., Washington 1935,“ bls. 23, eru útflutningskartelar undanskildir hinum almennu ákvæðum uin tak- markanir á kartelamyndunum á hinum bandaríska markaði. Þessir „export-kartelar“ eru þó skrásetn- ingar- og tilkynningarskyldir og hlíta að sjálfsögðu almennum lögum og reglurn í sambandi við milli- ríkja- og gjaldeyrisviðskipti. Englund í Englandi eru engar reglur, sem miða að því að takmarka útflutningssamtök í starfsemi sinni, nema síður sé. Hins vegar eru í hinum almennu lagagrein- um um einokun og samkeppni, „The monopolies and respective practices“, ákvæði, sem hægt cr að nota, ef um misnotkun samtaka er að ræða, en hins vegar engin, sem kveða á um, að slík samtök séu ólögleg. Hins vegar er andi laganna hliðhollur export-kartel- myndunum. Noregur Hinn 1. janúar 1954 var sett ný löggjöf, um verð- lag og „kartela11. Samkvæmt löggjöf þessari eru ákveðnar reglur og ákvæði varðandi „kartela", sem myndast í sambandi við sölu og framleiðslu fyrir innlendan inarkað, en engin ákvæði eru um „ex- port-kartela“. Ilér er aðeins minnzt á nokkur lönd, og væri mjög auðvelt að nefna fleiri. 4. Fyrirtækjasamsteypur Til fróðleiks skal ég nefna nokkur fyrirtæki, sem starfa á svipuðum grundvelli og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í sambandi við útflutning til ýmissa landa, en í þeim liafa þau ýmist eigin skrif- stofur cftir því, hvort markaðurinn er stór eða lítill, eða umboðsmenn. Umboðsmannakerfið er helzt not- að á litlum mörkuðum, eins og hér á íslandi, þar sem ekki borgar sig að hafa eigin skrifstofu cða eigin fyrirtæki. Bandaríkin Af bandarískum fyrirtækjum má m. a. nefna: Standard Oil Export Corporation og Typewriter Manufactnres E. A., en í þeim samtökum eru bandarískir framleiðendur, sem framleiða og flytja út um 90% af öllum ritvélum i Bandaríkjunum. Electrical Export Corporation, en í þeim útflutn- ingskartcl eru m. a. International General Electric Co. og Westinghouse Electrical Tnternational Co. California Dried Fruit E. A., og ýmis liveiti-, korn- og sykur-útflutningsfyrirtæki í Bandaríkjunum. England Álitið er, að í Englandi séu meira en 200 útflutn- 14 fnaáls vkhzi,un

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.