Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 36

Frjáls verslun - 01.07.1961, Blaðsíða 36
„Nei! Nei! Nei! í guðsbænum ekki éta eplið." ★ „Mamma, gefðu mér einn sykurmola,“ sagði litla stúlkan. „Þú ert búin að fá þrjá og ég sagði, að þú ættir ekki að fá fleiri.“ „Bara einn enn mamma.“ „Jæja, en það verður að vera sá síðasti.“ „Takk, mamma, — en ég verð að segja, að þú hefur ckki mikinn viljakraft.“ ★ Kona (í yfirfullum strætisvagni): „Ég vildi að þessi myndarlegi maður stæði upp fyrir mér og byði mér sæti.“ • Fimm menn stóðu upp. ★ „Ég tek aldrei vandamálin heim með mér frá skrifstofunni.“ „Ég geri það ekki heldur, mín vandamál bíða mín einnig heima.“ ★ „Er konan þín hagsýn?“ „Stundurn. Hún hafði aðeins 28 kerti á afmælis- kökunni, þegar hún varð fertug.“ Frú nokkur kom til skurðlæknis og bað hann að skera »ig upp. „Og livað gengur að yður?“ spurði hann. „Ekkert sérstakt, en ég er í bridge-klúbb og þar sem ég hefi aldrei verið skorin upp, þá get ég svo lítið tekið þátt í samræðunum.“ ★ „Látið eins og þið séuð heima hjá ykkur,“ sagði kona nokkur við gesti sína. „Ég er heima hjá mér og ég vildi að þið væruð það líka.“ ■k Frænka Sigga: „Viltu ekki meiri tertu, Siggi.“ Siggi: „Nei, takk fyrir.“ Frænkan: „Þú virðist þjást af lystarleysi.“ Siggi: „Nei, það er ekki lystarleysi, það er kurteisi, sein þjáir mig.“ ★ „Skilurðu hvað þelta þýðir iyrir mig? Þetta þýðir það, að nú mun iólk hlusta á mig þegar ég segi eitthvað." 36 FRJALS VEHZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.