Frjáls verslun - 01.07.1961, Page 11
vörur, sem sölusamtökin hafa átt erfitt með að selja
og sjálf veitt leyfi til að fluttar væru út af öðrum
aðilum, en slíkt á auðvitað ekkert skylt við skipu-
lagsbundna útflutningsstarfsemi.
Ég álít, að á þessu sviði sem öðrum eigi að koma
breyting, er stefni til meira frelsis. Það er al-
gjörlega hættulaust að leyfa fleiri aðilum að flytja
út, og við sumar aðstæður tel ég engan vafa á því,
að slíkt gæti leitt til vcrðhækkana, og á það sér-
staklega við í löndum, þar sem kaup á vörunni
hafa verið mestmegnis á fárra manna höndum, og
aðrir aðilar óska eftir að gerast reglulegir þátttak-
cndur í viðskiptunum. En jafnvel þar sem saian er
dreifð til margra kaupenda, svo sem í Bandaríkjun-
um, þá er það nú einu sinni svo, að ýmis sjónarmið
fjölmargra kaupenda, og óskir þeirra um að hafa
sin eigin föstu og sérstöku viðskiptasambönd, valda
því, að salan gæti aukizt verulega, ef fleiri væru
seljendur, fleiri vörumerki o. s. frv.
Sala á hraðfrystum fiski hefir vaxið mikið í ýms-
um löndum undanfarin ár. Þetta er ekki eingöngu
vegna aðgerða þcirra, sem fiskinn framleiða og
selja, heldur einnig vegna almennrar þróunar í
meðferð frystra matvæla yfirleitt, grænmetis og
margs fleira, sem hefir leitt til þcss að dreifingar-
kerfi hafa verið byggð upp án beins tillits til fisks-
ins. Hann hefir eigi að síður notið góðs af, og þegar
svo er háttað, hlýtur blátt áfram svo að fara, að
viðleitni fleiri fyrirtækja mundi leiða til aukinnar
sölu og ýmiss konar æskilegrar þróunar í þessum
viðskiptum. Ég álít til dæmis, að það sé langt frá
því að vera nokkur goðgá að pakka fisk í allstórum
stíl í umbúðir kaupenda og undir þeirra vöru-
merkjum, án þess þó að gera á nokkurn hátt sin-
um eigin merkjum erfitt fyrir. Ég reyndi þetta
talsvert hér á árunum fyrir kaupendur í Bandaríkj-
unum, Svíþjóð og Finnlandi, og ég get fullyrt, að
á þennan hátt hafi ég yfirleitt náð verulega hag-
kvæmari nettó-sölu en á annan hátt, með minni
kostnaði og nokkurn veginn áhættulaust.
Mönnum hefir undanfarna mánuði orðið alltíð-
rætt um þá stefnu Sölumiðstöðvarinnar að byggja
verksmiðjur víða um lönd til fullvinnslu fisksins.
Meðal veigamestu ástæðna til þessa hefir verið
talið, að á þennan hátt mætti flytja fiskinn til
Bandaríkjanna hálfunninn og greiða þar lágan toll,
þar sem fullunnin vara yrði tolluð miklum mun
hærra. Þetta eru góð og gild rök. Hins vegar liefi
ég aldrei skilið, til hvers er verið að byggja slíka
verksmiðju í Englandi, þar sem allur fiskur fer
inn undir sama tolli, hvort sem hann kemur með
haus og slori upp úr togara eða sem steikt flök til-
búin á borðið. Mér finnst að andvirði vinnunnar
við tilreiðsluna hefði líka mátt flvtja inn í landið.
Stefnan hlýtur þó að eiga að vera sú að flytja sem
mestan gjaldeyri inn í landið fyrir hvert tonn af
fiski, sem út er flutt. — Auk þessa er náttúrlega
ekki hægt að neita því, að það skapar ýmis dálítið
sérstök viðhorf, þegar tekið er kannske f.vrst og
fremst að selja sjálfum sér í útlöndum. og gæti þá
stundum, a. m. k. svona hreint ,,teoretiskt“ séð,
verið dálítið áhorfsmál, hvorn aðilann ætti að láta
græða meira, hinn innlenda eða hinn útlenda. Ekki
hvað sízt, þegar hækkun á andvirði fisksins, sem
til Islands kæmi, leiddi kannske óhjákvæmilega til
hækkunar hráefnis til báta og sjómanna strax árið
eftir, en hagnað erlendis vrði vafalaust erfitt að
leggja til grundvallar á sarna hát.t.
Það verður ekki um það deilt, nð fyrirtæki. sem
ræður yfir jafn-verulegum hluta þjóðarframleiðsl-
unnar og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, hlýtur að
liafa mjög mikilvæg félagsleg áhrif. og það á ýms-
um sviðum þjóðlífsins. Komist það álit á kreik og
teljist rökstutt, að þar sé annaðhvort illa á mál-
um haldið eða um óeðlilegan hagnað einstakra
aðila að ræða, hlýtur slíkt að leiða til aukinna
krafna verkamanna og sjómanna um liærra verð
fyrir vinnu og hráefni. Slíkar stofnanir hljóta að
verða gagnrýndar og eiga að vera háðar markvissri
gagnrýni, en þegar svo er komið, að slíkur félags-
skapur er orðinn nokkurn veginn einráður á sínu
sviði, verður ákaflega erfitt fyrir aðra að henda
reiður á því, hvað er að gerast, og gefst. fátt upp-
lýsinga þar um, nema af munni þeirra, sem fyrir-
tækinu stjórna. Aðili, sem gagnrýndur er, ver sig
í lengstu lög. í þessu sambandi kemur sú vörn
meðal annars fram í því, að haldið er fram, að
fiskurinn sé seldur fyrir sérstaklega hagstætt verð
og með lágum kostnaði miðað við allar aðstæður —
ja, eiginlega hafi verið unnið hreinasta þrekvirki
með því sem náðst hefir. Ég hefi meira að segja
oftar en einu sinni heyrt það kallað algjört krafta-
verk — og, að ég held, séð það á prenti! — Ekki
skal ég neita því, að kraftaverk kunni að gerast,
jafnvel á þessum síðustu og verstu tímum, en illa
hcfir inér gengið að verða þeirra var á þessu sviði
sem öðrum.
Ef gagnrýni, sem beint er að þessum sölusamtök-
um, ei ekki á rökum reist, er þá ekki sterkasta
vopnið af þeirra hálfu að segja: Sýndu að þú getir
FHJALS VEKZLUN
11