Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1963, Qupperneq 5

Frjáls verslun - 01.12.1963, Qupperneq 5
nú nánar vikið að þeim. I 2. málsgrein segir svo: „í ntanríkisstjórnarráðinu (þ. e. utanríkisráðuneyt- inu danska) skal skipa eftir ósk íslenzku stjórnar- innar og í samráði við liana trúnaðarmann, er hafi þekkingu á íslenzkum högum, til þess að starfa að íslenzkum málum.“ Danir voru samkvæmt þessu skyidir til þess að skipa þennan trúnaðarmann að ósk íslendinga og mundi því ekki hafa orðið af slíkri skipun, ef engin ósk hefði verið borin fram af íslands hálfu. Það var íslenzku stjórnarinnar að meta hvort trúnaðarmaðurinn væri nægilega kunnugur íslenzkum högum, og hefði hún ekki þurft að fallast á neinn þann mann, sem ekki upp- fyllti þetta skilyrði, eða sem hún ekki hefði getað treyst fullkomlega. Þó var trúnaðarmaðurinn dansk- ur embættismaður. Ekkert var þó tekið fram um það hvort hann ætti að vera íslendingur eða Dani, en eftir orðalagi sambandslaganna virðist þó frekar hafa verið ætlazt til að það yrði danskur maður sem fyrir valinu yrði. Samkvæmt stöðu sinni hafði trúnaðarmaðurinn beinan aðgang að utanríkisráð- herra Danmerkur og var lionum bæði rétt og skylt að finna að því, sem honum þótti aflaga fara um meðferð utanríkismála íslands og að afla sér allrar fræðslu um þau efni. Hann átti því rétt á að kynna sér öll skjöl um þau íslenzk mál, sem utanríkisráð- herrann hafði undir hendi og hann átti að veita ráðherranum og aðstoðarmönnum hans leiðbeining- ar og fræðslu um þau mál eftir föngum og óskum ráðherrans. Hann gat líka átt frumkvæði að því að danska utanríkisráðuneytið sinnti utanríkismál- um sem snertu hagsmuni Islands og farið þar eftir ábendingum ríkisstjórnar íslands. Loks gat íslenzka stjórnin borið fram fyrir hans milligöngu kvartanir og aðfinnslur um það sem aflaga þótti fara hjá Dönum. í þetta trúnaðarmannsstarf valdist Jón Krabbe, sem mörg árin næstu á undan liafði starfað á ís- lenzku stjórnarskrifstofunni í Kaupmannahöfn og var því þaulkunnugur íslenzkum mönnum og mál- efnurn, svo sem lesa má í endurminningum hans sem út komu fyrir nokkrum árum. Auk mikillar þekkingar og skilnings á þörfum hins unga fullvalda ríkis var Jón Krabbe framúrskarandi samvizku- samur embættismaður, skarpgáfaður og gæddur þeirri dómgreind að hann var ákaflega fljótur að átta sig á jafnvel mjög flóknum og erfiðum málum sem að garði bar. Það var mikið lán fyrir Islend- inga að þessi maður skyldi veljast í þetta að mörgu Jeyti vandasama starf. Honum má að verulegu leyti þakka hveru vel og giftusamlega tókst að ráða fram úr mörgum viðkvæmum vandamálum. Jón Krabbe gegndi trúnaðarmannsstarfinu allt til þess að það lagðist niður 1940. íslenzkir ráðunautar við dönsk sendiráð I 3. málsgrein 7. greinar sambandslaganna, segir: „Nú er einhvers staðar fenginn sendiherra eða sendiræðismaður og skal þá skipa hann eftir ósk íslenzku stjórnarinnar og í samráði við hana, enda greiði Island kostnaðinn.“ Það má telja eðlilegt, að um skilyrði til skipunar manna í þessi embætti hefðu verið látin gilda sömu sjónarmið og um trún- aðarmanninn í utanríkisráðuneytinu, þ. e. að þeir hefðu nægilega þekkingu á íslenzkum málefnum og nytu trausts íslenzku stjórnarinnar, en þessi lieimild var aldrei notuð. Þessir menn mundu liafa verið skipaðir af hlutaðeigandi dönskum stjórnar- völdum og því talizt danskir embættismenn, en ekki íslenzkir. Ef Danir hefðu af sjálfdáðum fjölgað sendiráð- um og ræðismannsskrifstofum hefðu Islendingar notið góðs af því, þar sem öll danska utanríkisþjón- ustan var skuldbundin til þess að gæta hagsmuna íslands hvar sem hægt var að láta slíkt í té og eftir því sem tilefni gafst. Hitt er vafasamt hvort Danir hefðu getað lagt niður sendiráð eða ræðis- mannsskrifstofu ef slíkt hefði verið talið brjóta í bága við hagsmuni Islands. Vafalaust hefðu íslend- ingar getað krafizt þess, að svo yrði ekki gert, gegn því að greiða þá kostnaðinn, en óþarft er nú að eyða frekari orðum að þessu, þar sem til slíks kom aldrei þau 22 ár sem Danir fóru með utanríkismálin samkvæmt sambandslögunum. Þá segir ennfremur í 3. málsgrein þessarar sömu greinar: „Með sömu skilyrðum skal skipa ráðu- nauta með þekkingu á íslenzkum högum við sendi- sveitir og ræðismannaembætti þau, sem nú eru. Ef stjórn íslands kýs að senda úr landi sendimenn á sinn kostnað, til þess að semja um sérstök íslenzk málefni, má það verða í samráði við utanríkisráð- herra.“ Hér var, að því er þessa ráðunauta snerti, um sömu þekkingarskilyrði að ræða og ég hefi áður minnzt á í sambandi við trúnaðarmanninn í utanríkisráðuneytinu danska, en að öðru leyti má taka það fram, að staða þessara ráðunauta taldist vera sú sama og þeirra sem skipaðir hefðu verið í sambandi við stofnun nýrra sendiráða og ræðis- mannsskrifstofa. Ráðunautarnir töldust danskir em- bættismenn, en þó fór svo í reynd, að þeir tóku $ r’RJÁLS VERZLUIý

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.