Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1963, Síða 18

Frjáls verslun - 01.12.1963, Síða 18
Dr. Ágúst VaHells: Island á afómöld Þ.ann 2. desember 1942 skeði það í kjallara undir Stagg Field íþróttavellinum við háskólann í Chicago, að maður dró stöng úr kaidum málmi varlega út úr hlaða af grafít blokkum og stuttum úraníum sívalningum. Vísir á Geiger-teljara sýndi skyndilega mikla aukningu á geislavirkni í nánd við hlaðann, og þar með var atómöldin runnin upp. Ollum er ljóst hvílík áhrif kjarnorkan hefur haft á félagslega þróun mannkynsins á þeim til- tölulega stutta tíma, sem liðinn er frá þessum at- burði. Hver áhrif kjarnorkunnar verða í framtíð- inni, er erfitt að segja um, en það veltur að sjálf- sögðu fyrst og fremst á því, hvort hún verður not- uð í stríði eða friði. Hér skulum við reyna að gera okkur grein fyrir því, hver áhrif kjarnorkunnar á íslenzku þjóðina geta orðið fyrir báða þessa möguleika. Við skulum athuga þann fyrri fyrst. Almannavamir Núna er áætlað að heildar vopnaforði stórveld- anna sé meiri en 60.000 megatonn að sprengiafli. Til samanburðar má geta þess, að heildarmagn allra þeirra sprengja, sem notaðar voru í annarri heimsstyrjöldinni, var á við 2 megatonn. Styrjöld, þar sem öllum vopnabirgðunum yrði beitt, myndi tvímælalaust þýða gagnkvæma tortímingu stríðs- aðilanna. Af þessum ástæðum mun tæpast nokkur þjóð leggja út í kjarnorkustyrjöld að yfirlögðu ráði. Ilinsvegar er alltaf sú hætta fyrir hendi, að til árekstra komi milli kjarnorkuvelda, sem aftur leiði af sér stærri árekstra, og þannig koll af kolli. Ekki væri víst, að stjórnendur kjarnorkuveldanna fengju þá spornað við atburðarásinni áður en í óefni væri komið. Þessi hætta er, sem betur fer, ekki miki! eins og er, en hún mun aukast eftir því sem fleiri þjóðir öðlast kjarnorkuvopn. Þó að þessi hætta sé lítil, sem stendur, er það engu að síður álit þeirra, sem mest hafa íhugað þessi mál, að það séu meiri líkur fyrir því að flugfarþegi á norðurhveli jarðar farist í kjarnorkustyrjöld, heldur en því, að hann farist í flugslysi. Ef svo hörmulega færi, að alger kjarnorkustyrj- öld skylli yfir, mætti búast við því, að manntjónið (eins og sakir standa í dag) yrði ekki minna en 250 milljónir manna. Við íslendingar gætum ekki búizt við því, að komast hjá tjóni í slíkri styrjöld, því við yrðum mitt á hættusvæðinu. Við gætum átt á hættu að missa allt að því 100.000 manns, væru engar varnir viðhafðar. Við íslendingar værum algerlega sinnu- Iausir um framtíð okkar, ef við gerðum ekki ein- hverja.r ráðstafanir til almannavarna, þó við þurf- um vonandi aldrei á þeim að halda. Þó að almannavarnir geti ekki komið í veg fyrir manntjón, geta þær dregið mjög mikið úr því. Víð- tækasta hættan af kjarnorkusprengjum stafar af geislun frá geislavirku úrfalli, en það er jafnframt sú hætta sem auðveldast er að verjast. A þeim svæðum, þar sem geislavirkt úrfall kemur niður (en þau geta verið hundruð kílómetra á lengd og tugir kílómetra á breidd fyrir eina sprengju), get- ur fólk þurft að dveljast í byrgjum allt að tvær vikur, áður en óhætt er að vera úti við að stað- aldri. Nálægt sprengistaðnum, þar sem geislunin er allra mest, getur fólk þurft að flytja brott af svæðinu jafnvel eftir þann tíma. Engu að síður getur mannbjörg orðið víðast livar á úrfallssvæði, ef byrgi með vistum til tveggja vikna dvalar eru til taks. Við íslendingar höfum að þessu leyti betri að- stöðu en ýmsar aðrar þjóðir, því að flest hús hér 18 yEHzraJN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.