Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1967, Qupperneq 59

Frjáls verslun - 01.12.1967, Qupperneq 59
FRJÁLS VERZLUN 35 Á MARKAÐINUM Tré til yndisauka JÓLATRÉSNOTKUN íslend- inga hefur vaxið nokkuð jafnt, um 2 til 5%, síðan 1955. Þá voru notuð um 10.000 tré í landinu öllu, en í fyrra var notkunin komin upp í rúmlega 14.000 tré, og reiknaö' er með mjög svipaðri notkun í ár. Það skal strax tekið fram, að þeg- ar rætt er um jólatré í þessum greinarstúf,eru gervijólatré und- anskilin, en þau eru nú á stöðugu undanhaldi. í fyrra voru flutt inn um 15.000 jólatré alls og þar af flutti Skóg- rækt ríkisins inn rúmlega 12.000 tré, en nokkrir smáinnflytjendur um 3.000. Eftir árið 1955 var Skógræktin lengi vel eini innflytj- andinn, en á síðustu árum hafa nokkrir smáinnflytjendur bætzt við, þótt enn séu þeir langt frá því að vera hálfdrættingur á við Skógræktina, hvað innflutning jólatrjáa snertir. í ár verða flutt inn rúmlega 17.000 jóiatré alls og flytur Skóg- ræktin ein inn á þrettánda þús- und þeirra. Hlutur íslenzku jóla- trjánna er enn ósköp smár. í ár verða felld 300—400 tré á Hall- ormsstað og á Stálpastöðum í Skorradal. Trén frá Haaormsstað fara niður í austurfirðina, en Borgnesingar sitja einir að trjám frá Stálpastöðum. Allur ágóðinn af jólatrésinn- flutningi Skógræktarinnar renn- ur til Landgræðslusjóðs og heíur hann numið mili tvö og þrjú hundruð þúsund krónum undan- farin ár, en ekki seldust nema 14.000 tré í fyrra og skilaði inn- flutningur Skógræktarinnar þá aðeins um 100.000 króna hagnaði. Allur innflutningurinn á jóla- trjám er frá Danmörku og lang- stærsti hluti þeirra kemur frá Jót- landi — frá Heiðarfélaginu, sem er sölusamband danskra bænda á heiðunum. Danir hafa lagt mikið kapp á ræktun jólatrjáa og selja þau suður um alla Evrópu, allt suður á Ítalíu, en stærsti markað- urinn er í Þýzkalandi. Tollur af jólatrjám er nú 125%, en var hæstur 250% fyrir nokkr- um árum. Rauðgreni og þinur. Aðeins er um tvær tegundir jólatrjáa að ræða: Annars vegar rauðgreni (íslenzku jólatrén eru rauðgreni) og hins vegar þin. Þinurinn heldur barrinu snöggt- um lengur en rauðgrenið, en hann er líka sex sinnum dýrari i inn- kaupum. í ár verða flutt inn á annað þúsund þintré. Jólagreinar. Jólagreinarnar eru aðeins af tveim tegundum eins og jólatrén: Furugreinar og þingreinar. Áður fyrr voru furugreinarnar mjög vinsælar, en hafa síðustu árin þok- að mjög fyrir þingreinunum, sem, eins og trén, haldast lengur græn- ar. í fyrra voru flutt inn um 35 tonn af þingreinum, en af íslenzku furugreinunum voru notuð milli 5 og 10 tonn. Tízkan. Allt lýtur lögmálum tízkunnar — einnig jóiatrén og jólagreinarn- ar. Fyrir 10 árum eða svo voru lægri trén (upp í 1.50 m.) mest í tízku og voru þá notuð innan- húss. Síðan komst í tízku að láta jólatréð standa úti í garði og nú eru hærri trén (upp í 2 m.) vin- Unnið við afgreiðslu á jólatrjám.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.