Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1967, Blaðsíða 81

Frjáls verslun - 01.12.1967, Blaðsíða 81
FRJÁLS VEFÍZLUN 4-9 VÍÐS VEGAR AÐ TÖLVUR OG FRAMÚRSTEFNUMENN Listamenn eru ekki af baki dottnir fremur en vanalega. Nú hafa þeir, sem kenndir eru við avant- garde eða framúrstefnu, fundið nýja aðferð til að gefa hugmyndaflugi sínu og sköpunargáfu lausan tauminn. Herma erlend tímarit, að þessi hópur listamanna sé hvergi nærri nógu ánægður með þekkingu sína á meðferð tæknilegra og vísinda- legra tækja. Hafa nokkrir listamenn af þessu tagi stofnað með sér félag, sem þeir kalla Experiments in Art & Technology Inc. (EAT), og ætla þeir að vinna að því að fá rafreikna, tölvur og annað þess háttar í þjónustu sína. M. a. hafa þeir leitað til þekktra framleiðslufyrirtækja á þessu sviði, svo sem AT&T og IBM, og farið fram á að gerður yrði listi yfir þá vísindamenn í starfsliði fyrirtækjanna, sem áhuga hafa á að starfa með þeim listamönnum, sem á tæknilegri aðstoð þurfa að halda. Hafa fyrir- tækin tekið vel í þessa beiðni, og mun vera tals- verður áhugi hjá vísindamönnum að starfa með listamönnunum. AÐ KOMA ÁR SINNI VEL FYRIR BORÐ Dean Martin er nú einhver dýrasti skemmti- kraftur veraldar og hefur velgengni hans á undan- förnum árum verið gífurleg. Eru árstekjur hans sagðar vera 5 milljónir dollara (250 milljónir ísl.), og mun enginn annar bandarískur skemmtikraftur geta státað af slíku. Sjónvarpsþáttur hans hefur hvað eftir annað verið kosinn vinsælasti sjónvarpsþáttur Bandaríkj- anna og annar eins fjöldi mun ekki horfa á neinn annan þátt þar vestra. Þetta er furðulegt, þegar þess er gætt, að blöð og tímarit hafa greint frá því hvað eftir annað, að við engan þátt í bandarískum sjónvarpsstöðvum sé lögð eins lítil rækt. Þá fær Dean Martin einnig svimandi upphæðir fyrir leik sinn í kvikmyndum, sem hann leikur í, og þegar hann kemur fram á almennum næturklúbbum, er þar jafnan uppselt og komast miklu færri að en vilja. Loks tæmist honum líka mikill gróði af hljómplötum, sem hann syngur inn á. Verður með sanni sagt, að þetta sé vel gert af manni, sem allir töldu hnígandi stjörnu, þegar hann og Jerry Lewis gamanleikari slitu félagsskap fyrir 10 árum. NEYÐARSÍMI HÉR í REYKJAVlK Norðmenn hafa nú komið fram á sjónarsviðið með nýtt boðunar- og neyðarkerfi, sem gerir kleift að nota línur venjulegs bæjarsíma til neyðarhring- inga beint til slökkviliðs, lögreglu, læknavakta o. fl. Hefur neyðarsímum verið komið upp á fjölförn- um svæðum og þéttum íbúðahverfum, og m. a. hef- ur Reykjavíkurborg fest kaup á slíku kerfi. Svo óheppilega vildi þó til, að um 75% kerfisins brunnu inni í Borgarskálabrunanum, en nota á það sem ónýttist ekki til að koma boðunarkerfi heim til slökkviliðsmanna. Þetta nýja neyðarsímakerfi er bæði ódýrara í uppsetningu og viðhaldi en önnur kerfi af sama toga spunnin. Þegar hringir frá tæki, sem sett hef- ur verið upp á fjölförnum stað, slitna þegar öll önnur samtöl á línunni, og neyðartækið kemst sjálf- krafa í samband við neyðarsímsvarann. Mikill kost- ur er, að sá er svarar fær munnlegt samband við þann er hringir, og getur því tekið niður um hvers kyns neyðartilfelli sé að ræða, og er því strax hægt að gera viðeigandi ráðstafanir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.