Frjáls verslun - 01.12.1967, Síða 67
iFRJÁLS VERZLUN
39
BLÖÐ — BÆKUR
Islendingasögurnar
koma út á nýjan ieik
42 bindi foinsagna seld með hagkvœmum greiðsluskilmálum.
ÍSLENDINGASÖGURNAR í út-
gáfu Guðna Jónssonar prófessors
og að nokkru Bjarna Vilhjálrns-
sonar magisters eru nú aftur að
koma á markaðinn eftir að hafa
verið nær ófáanlegar í 10 ár. Hef-
ur verið myndað nýtt fyrirtæki
utan um íslcndingasagnaútgáfuna,
sem hefur gefið kost á 42 bindum
með mjög hagstæðum kjörum
Þsssar bækur eru Islendinga-
sögurnar í 12 bindum og nafna-
skrá með þeim í einu bindi, Forn-
aldarsögur Norðurlanda, 4 bindi,
Snorra-Edda, Eddukvæði og Eddu-
lyklar, 4 bindi, Konungasögur, 3
bindi, Biskupasögur og Sturlunga
ásamt Annálurn og nafnaskrá, 7
bindi samtals, Riddarasögur, G
bindi, Karla-Magnús-saga, 3 bindi
og Þiðriks saga af Bern 2 bindi.
Samtals eru þetta 42 bindi, sem
verða boðin á 16 þúsund krónur
fram til 31. deserjiber nk. Eftir pað
getur verið að verðið breytist.
Greiðsluskilmálar eru þeir að við
undirskrift samnings greiðast 4
þúsund krónur og eru 11 bindi aí-
hent um leið. Síðan er gert ráð fyr-
ir mánaðarlegum afborgunum, eitt
þúsund krónum, þar til söluverð-
ið er að fullu greitt. Gert er ráð
fyrir að 18 bindi verði afhent á
tímabilinu jan.—febr. 1968 og 13
bindi fyrir lok júlí 1968. Gegn
staðgreiðslu er veittur 10% aí-
sláttur.
Utgáfa íslendingasagnanna, sem
nú er endurprentuð, hófst í
stríðslok og kom öll út á næstu
árum nema Konungasögurnar sem
voru gefnar út árið 1957. Þá var
heildarverkið að seljast upp og
voru síðustu fimmtán eintaka-
flokkarnir bundnir 1960. Má segja
cð þessi útgáfa hafi verið illfáan-
leg síðan 1957.
Bækurnar eru í Crown-broti og
skinnbandi, meðalstærð er 29 ark-
ir. Prentun annast Offsetmyndir
s.f. og Félagsbókbandið annaðist
bókband. í stjórn íslendingasagua-
útgáfunnar eru nú Gunnar Þor-
leifsson form., Jón B. Hjálmars-
son og Björn Jónsson, sem jafn-
frarnt er framkvæmdastjóri. Hin
nýja útgáfa verður aðallega til
sölu hjá bókaverzlunum úti um
allt land en sennilegt er að hún
verði til sölu hjá einstaka söiu-
mönnum bóka. Utanáskrift Islend-
ingasagnaútgáfunnar er pósthólf
73, Reykjavík.