Frjáls verslun - 01.12.1968, Page 11
FRJAL5 VERZLUNI
7
Við Ölgerðina starl'a um 100 manns að jafnaði.
vík. Hún var til húsa við Norður-
stíg, þar sem Fiskhöllin er nú.
Þessi ölgerð varð mjög skammlíf.
en „Egill Skallagrímsson“ lifði af
áföllin og vegur þess fyrirtækis
fór vaxandi.
Árið 1915 sigldi Tómas til Dan-
merkur og vann þar við ölgerðina
Stjörnuna, sem verkamannafélög-
in dönsku ráku þar til fyrir tveim
árum. Síðar sigldi Tómas svo aft-
ur utan til náms og vann þá nokk-
urn tíma við þýzka ölgerð.
Þegar Tómas kom heim úr fyrri
siglingunni, hófst hann þegar
handa við að hagnýta aukna þekk-
ingu sína í þágu fyrirtækis síns.
Það starf sá fljótlega sinn ávöxt
og 1917 flytur Ölgerðin Egill
Skallagrímsson í nýtt húsnæði að
Njálsgötu 21, en þar hafði Tómas
keypt lóð og byggt yfir fyrirtæki
sitt. Tómas ætlaði sér að hefja
framleiðslu á Pilsneröli í nýja hús-
næðinu, en tæki reyndust ekki
nógu góð og ásetti Tómas sér þá
að afla nýrra ölgerðartækja og
reisa hús, sem að öllu levti gæti
jafnast á við erlend ölgerðarhús.
1924 eru húsakynnin við Njálsgötu
svo stækkuð og endurnýjun á
tækjakosti hafin.
Tveimur árum síðar réðist þýzk-
ur ölgerðarmaður til starfa hjá fyr-
irtækinu og á því ári kom „Pilsn-
erinn“ á markað. Þetta nýja öl
varð þegar i stað mjög vinsælt og
svo fór, að það útrýmdi alveg
danska ölinu, sem fram að þessu
hafði svo til einokað íslenzka
markaðinn. Ölgerðin, sem fyrst
leit dagsins Ijós í óhentugu hús-
næði Þórshamarskjallarans, stóð
nú með pálmann í höndunum.
„En þessi sigur dró dálítinn dilk
á eftir sér“, segir Tómas. „Fram
að honum höfðu engir tollar verið
á innlendri öl- og gosdrykkjafram-
leiðslu, en nú vaknaði ríkisstjórn-
in við vondan draum; búin að
missa allar tollatekjurnar, sem hún
hafði haft af erlenda ölinu. Til
þess að bæta sér þetta upp valdi
ríkisstjórnin þann aðila, sem hafði
rænt hana þessum tekjum og setti
framleiðslutoll á alla innlenda öl-
og gosdrykkjaframleiðslu. Þessi
tollur hefur svo margfaldazt með
árunum“.
En danska ölið varð ekki að-
eins að lúta lægra haldi fyrir
Pilsner Ölgerðarinnar með íslenzk-
um. „Við konungskomuna 1926“,
segir Tómas, „seldum við Pilsner
um borð í konungsskipin og líkaði
dönsku liðsforingjunum hann svo
vel, að þeir tóku hann framyfir
danska ölið. Þetta varð til þess,
að konungur veitti O'kkur konung-
légan- hirðsalatitil og héldum við
honum allt til ársins 1944, að leið-
ir fslendinga og Dana skildu".
Tvíefld af þessum sigrum yfir
danska ölinu hélt Ölgerðin Egill
Skallagrímsson áfram að blómg-
ast og stækka. „Árið 1929 keypti
ég íbúðarhúsið Njálsgötu 19“, seg-
ir Tómas, „breytti því og setti þar
upp ölsuðuvélar. Um líkt leyti
keypti ég líka Frakkastíg 14 B“.
Næst rennur svo Alþingishátíð-
arárið upp. Það ár urðu tveir at-
burðir öðrum fremur í sögu fyrir-
tækis Tómasar; gosdrykkir komu í
fyi'sta sinn á markaðinn undir
merki þess og fyrirtækið eignaðist
sinn fyrsta bíl.
„Bílinn keypti ég til ölflutninga
austur á Þingvöll“, segir Tómas.
„Þar leigðum við okkur stórt lag-
ertjald til að geta dreift ölinu á
sem hentugastan máta í sölutjöld-
in, því það var mikið drukkið af
Egils-öli á hátíðinni“.
Hinn atburðurinn, sem að fram-
an er minnzt á, varð með þeim
hætti, að Tómas keypti litla gos-
drykkjaverksmiðju, sem Siríus
hét. Hófst þá framleiðsla á gos-
drykkjum undir merki Ölgerðar-
innar og á markaðinn komu þær
þrjár tegundir, sem þá þekktust;
appelsín, sítrón og jarðarberja-
límonaði. Skömmu siðar keypti
Tómas svo aðra gosdrykkjaverk-
smiðju, sem fyrirtækið Nói rak
áður.
Árið 1932 er Ölgerðin Egill
Skallagrímsson gerð að hlutafé-
lagi, en þá sameinaðist henni Öl-
gerðin Þór, sem um tæplega
tveggja ára skeið hafði framleitt
bæði öl og gosdi-ykki. Við þenn-
an samruna bættist hlutafélags-
skammstöfunin — hf fremst í
nafn Ölgerðarinnar og hefur hún
haldizt þar síðan.
Síaukinn tækjakostnaður krafð-
ist auðvitað rýmra húsnæðis og í
byrjun heimsstyrjaldarinnar síð-
ari byggði hf. Ölgerðin Egill
Skallagrímsson á Þórslóðinni við
Þverholt. Þangað var svo öll gos-
drykkjaframleiðsla fyrirtækisins
flutt, en ölið var áfram framleitt
við Njálsgötuna.
í lok stríðsins var húsnæðið við