Frjáls verslun - 01.12.1968, Page 48
ZB
FRJAL5 VERZLUN
FJÁRMÁLAÞRÓUNIN INNAN
EFNAHAGSBANDALAGSINS
f síðustu skýrslu sinni um efna-
hagsþróunina innan Efnahags-
bandalags Evrópu segir Fram-
kvæmdaráð bandalagsins, að iðn-
aðarframleiðslan þar hafi náð sér
eftir þau áföll, sem urðu í verkföll-
unum í Frakklandi í maí sl. Á
tímabilinu apríl til maí hafði heild-
arframleiðsluvísitala iðnaðarins
fallið úr 185 niður í 170 (1958 =
100). Frá því um miðjan júní hef-
ur iðnaðarframleiðslan hins vegar
náð, ef ekki farið fram úr fyrra
vaxtarhlutfalli sínu.
Önnur afleiðing af atburðunum
í Frakklandi var rýrnun á gull-
og gjaldeyrisforða Efnahagsbanda-
lagsins. Nam rýrnunin á öðrum
ársfjórðungi um 1.500 millj. doll-
ara og var aðalorsök hennar mikil
rýrnun á gull- og gjaldeyrisforða
Frakklands sem síðan hefur rýrn-
að enn að mun, eins og kunnugt
er af fréttum að undanförnu.
Þjóðverjar vilja nánari
samvinnu í peningamáliun
Félag bankastjórnarmanna í V-
Þýzkalandi hvatti í síðustu árs-
skýrslu sinni til nánari samvinnu
milli aðildarríkja Efnahagsbanda-
lagsins í peningamálum. Þetta fé-
lag, sem nær til einkabanka lands-
ins, heldur því fram, að framfarir
í peningamálum innan Efnahags-
bandalagsins gæti orðið til þess að
hvetja fyrir aukinni sameiningu
bandalagsríkjanna á öðrum svið-
um. Leggur félagið til, að sam-
ræming efnahagsstefnunnar innan
bandalagsins ætti að verða fengin
í auknum mæli í hendur Fram-
kvæmdaráði bandalagsins. Ríkis-
stjórnum einstakra aðildarríkja
skyldi falið að láta uppi athuga-
semdir sínar varðandi tillögur,
sem fram kæmu án þess að þær
væru neyddar til að fallast á þær.
Á þennan hátt myndi fást betra
yfirlit yfir það, sem Framkvæmda-
ráðið teldi nauðsynlegt í efnahags-
legu tilliti og það, sem ríkisstjórn-
ir hinna einstöku ríkja teldu raun-
hæft í stjórnmálalegu tilliti.
Eftirlit með erlendri
fjárfestingu í Frakklandi
Franska stjórnin hefur skýrt
Framkvæmdaráði Efnahagsbanda-
lagsins frá því, að fjárfestingi í
Frakklandi, sem á rót sína að
rekja til annarra ríkja bandalags-
ins, verði að tilkynna hinu opin-
bera, jafnvel þó að ekki verði um
það er að ræða, að leyfi til hennar
verði hafnað. Frakkland kom á
eftirliti með erlendri fjárfestingu
í janúar í fyrra en það er ráð-
stöfun, sem Framkvæmdaráðið
hefur talið ósamrýmanlega ákvæð-
um bandalagsins um frjálsan
flutning fjármagns. Franska
stjórnin er þeirrar skoðunar, að
henni sé nauðsyn á að hafa eftir-
lit með erlendri fjárfestingu, unz
ríkin sex í Efnahagsbandalaginu
hafi tekið upp sameiginlega stefnu
varðandi fjárfestingu af hálfu
þeirra ríkja, sem ekki eru með-
limir í bandalaginu. Nær þetta
einnig til fjármagns, sem er veitt
frá einu meðlimaríki inn í annað,
en á uppruna sinn utan Efnahags-
bandalagsins.
Verðfall peninganna
Lækkun á gildi peninga er
reiknað út með því að finna út,
hve kaupmáttur einstakra gjald-
miðla heima fyrir hefur minnkað,
byggist sá útreikningur á hækk-
un opinberrar vísitölu á fram-
færslukostnaði. Gildi opinberra út-
reikninga á heildarverðlagi er mis-
munandi frá landi til lands og
skiptir þar máli, til hvaða flokka
vörutegunda og þjónustu hún nær,
og ýmsum öðrum þáttum. Með-
fylgjandi tafla sýnir rýrnun pen-
inga í ríkjum Efnahagsbandalags-
ins, Fríverzlunarbandalagsins og í
Bandaríkjunum á tímabilinu 1957
—1967. Á þessu tíu ára tímabili
hefur rýrnun á verðgildi peninga
orðið mest innan Efnahagsbanda-
lagsins í Frakklandi og í Dan-
mörku innan Fríverzlunarbanda-
lagsins. Minnzt hefur hún orðið í
Bandaríkjunum af hinum stærri
ríkjum.