Frjáls verslun - 01.12.1968, Blaðsíða 54
30
Verksmiðjan starfar í Iðngörðum og er starfsfólk á milli 40 og 50.
hins vegar fá hverjar buxur um
sig sérstaka meðferð.
Koratron mun vera upprunniö
í Bandaríkjunum, en Dúkur hf.
skiptir mest við Bretland, og hefur
raunar einkaleyfi sitt gegnum
dótturfyrirtæki Koratron í Bret-
landi. Áður en hafin er fram-
leiðsla á nýrri flík, er hún send
til Englands, þar sem hún er tek-
in til meðferðar i rannsóknarstof-
um Koratron og gæðin prófuð.
Bjarni er ánægður með árang-
urinn af þeim gæðaprófum, því
framleiðsla Dúks hf. hefur íengið
frábærar einkunnir og þar með
fulla sönnun þess, að fyrsta fram-
leiðslan hefur gengið að óskum.
Dúkur hf. framleiðir að sjálf-
sögðu einnig Koratron buxur fyr-
ir konur, en Bjarni gerir ekki ráð
fyrir að byrjað verði að framleiða
jakka, a. m. k. ekki í bráð. Kins
vegar hefur Koratron náð vinsæld-
um í gerð regnfrakka, hlífðar-
blússa og þessháttar, og því ekki
ólíklegt að framleiðslan verði fjöl-
breyttari, er fram líða stundir,
t. d. koma drengjabuxur fljótlega.
Hvað verðið snertir, munu kven-
buxur ef til vill vera 5—10 pró-
sent dýrari og karlmannabuxur
kosta 1000 til 1100 krónur. (Þetta
er ritað fyrir yfirvofandi gengis-
fellingu og óáran).
Litir og snið eru einnig í nokkru
úrvali, litirnir eru t. d. brúnn,
ljós- og dökkgrár og flösku-
grænn.
Verksmiðjan Dúkur hf. stendur
FRJALS VERZLUN
á gömlum merg. Fyrir tæpum
tveim árum var hún til húsa við
Brautarholt. Þá voru engöngu
framleiddar Kanters lífstykkja-
vörur, drengjafatnaður og Slimma
kventízkuvörur.
Nú er verksmiðjan flutt aö
Skeifunni 13 í Iðngörðum og hcf-
ur þar 600 fermetra húsnæði til
umráða. Það er þó aðeins fyrsti
áfangi í endanlegri byggingu, sem
verður 1500 fermetrar.
Og nú er búið að bæta við vél-
um, starfsfólki, Koratron buxum
og Activity karlmannanærföturn,
öllu á einu bretti. Það mun ekki
fjarti lagi, að vélakostur verk-
smiðjunnar hafi verið meira en
tvöfaldaðui og starfsmenn eru
milli 40 og 50.
Kventízkuvörur Dúks h.f.
Þær eru sjálfsagt ekki margar
konurnar, sem kannast ekki við
vörumerkin Kanters og Slimma,
og vita að þau eru erlend. En
Dúkur hf. hefur alltaf unnið vör-
una ao öllu leyti hér á landi enda
ein vélvæddasta verksmiðja, sem
framleiðir föt hér.
Koratron er nýjasta viðbótin
og vonandi verður hún til þess, að
færri karlmenn líti út fyrir að
hafa sofið í buxunum sínum.
Svljjuitt sœntjttr «í/ hutlíla
EttíIuraiýijutBt t/titttlu stfts t/ttrst ett'
DÚN DG FIÐURHREIN5UNIN
VATNSSTÍG 3 - SÍMI 1S74G