Frjáls verslun - 01.12.1968, Blaðsíða 55
FRJÁLB VERZLUN
31
IÐNAÐUR
NÓI ~ HREINN ~ SIRÍUS
Fyrir fjörutíu og átta árum var
stofnað í Reykjavík sameignarfé-
lag, sem hlaut nafnið 'Nói. Það
barst ekki mikið á í fyrstu og var
ekki mjög þekkt, enda umsetn-
ingin ekki mikil og starfsmenn
ekki nema þrír. En fyrirtækið
dafnaði og óx hröðum skrefum og
í dag eru þeir líklega ekki margir
íslendingarnir, sem ekki kannast
við Nóa brjóstsykur og hafa neytt
hans með ánægju. Stofnendur
Nóa s/f voru þeir Gísli Guðmunds-
son gerlafræðingur, Eiríkur Beck,
Loftur Guðmundsson, konungleg-
ur hirðljósmyndari, Hallur Þor-
leifsson kaupmaður og Þorgils
Ingvarsson bankafulltrúi. Eiríkur
Beck var forstjóri til ársins 1955,
en þá tók við Hallgrímur Björns-
son, efnaverkfræðingur, sem hef-
ur gegnt því starfi síðan. Hall-
grímur er ekki einungis forstjóri
fyrir Nóa, heldur og Hreini og
Siríusi en stofnhluthafendur Nóa
keyptu þau fyrirtæki og slógu
þeim saman öllum þrem. Árið 1934
fluttu fyrirtækin í húsnæði að Bar-
ónsstíg 2, þar sem þau hafa haft
starfsemi sína síðan.
Fyrstu árin voru fyrst og fremst
framleiddar súkkulaðivörur hjá
Siríusi, brjóstsykur og karamell-
ur hjá Nóa og hjá Hreini voru það
kerti, hreinlætisvörur og ýmsar
efnagerðarvörur eins og t. d. vagn-
áburður og 'skósverta.
í dag er borðað meira af Siríus
súkkulaði en nokkru öðru ís-
lenzku súkkulaði og Nói og Hreinn
hafa einnig vaxið mikið. En sam-
keppnin er hörð og aðstaðan erf-
ið. Það eru 12 sælgætisframleið-
endur félagar í F. í. I. og auk þess
eru nokkrir minni framleiðendur,
sem ekki eru í þessum samtökum.
Innflutningur á útlendu sæl-
gæti er mjög takmarkaður þann-
ig, að íslenzku fyrirtækin ein sitja
að markaðnum. Ef svo væri ekki
yrðu þau ekki langlíf vegna hárra
tolla á hráefnum til framleiðslunn-
ar og innlends tollvörugjalds af
súkkulaði og sykurvörum.
Til þess að kynna okkur þessi
útgjöld, hittum við Hallgrím
Björnsson að máli.
— Það er alveg öruggt, að við
ættum ekki lífs von, ef innflutn-
ingur á erlendu sælgæti væri
leyfður. Við borgum stórar fjár-
hæðir í toll eða innlent tollvöru-
gjald, sem er 41, 60 kr. pr. kg. af
átsúkkulaði og helmingi minna af
suðusúkkulaði. Einnig get ég
nefnt, að við verðum að greiða að
auki fjórar krónur í styrktarsjóðs-
gjald fyrir hvert kg. af átsúkku-