Frjáls verslun - 01.12.1968, Qupperneq 61
FRJALS VERZLUN
33
AF ERLENDUM VETTVANGI
JAPAN -
EITT AF EFNAHAGSSTÓRVELDUM HEIMS
Þjóðaríramleiðslan kann að tvöfaldast á nœstu níu árum.
Japan er orðið eitt af mestu
efnahagsstórveldum heims og lief-
ur getað státað af einhverjum
mesta hagvexti í heimi eða um
10% á ári undanfarin ár. Japanir
sýndu það fyrstir Austurlanda-
VÖXTUR AÐALIÐNGREINA:
Framleiðsluaukning á stáli 315%
Framleiðsluaukning flutningatœkja 1.400%
Aukning skipasmíða 400%
þjóða, hve auðvelt þeir áttu með
að læra og hagnýta sér framfarir
tæknialdarinnar. Þess vegna hef-
ur saga þeirra og örlög á þessari
öld orðið allt önnur en annarra
þjóða Asíu bæði til góðs og ills.
Nú geta Japanir samfara efnahags-
legum mætti sínum státað af því
að vera friðsamlegasta stórveldi
heims. Her þeirra er aðeins til að
nafninu til. í honum eru um
250.000 manns, sem í samanburði
við hernaðarstórveldin er næst-
um hlálega lág tala miðað við
100 millj. manna þjóð. Efnahags-
leg geta þjóðarinnar og fjölmenni
eru augljósar forsendur þess, að
Japanir gætu gerzt hervelai, hve-
nær sem er, og vegna tæknikunn-
áttu sinnar myndu þeir sjálfsagt
geta framleitt kjarnorkuvopn á
örskömmum tíma.
Samkvæmt friðarsamningum
þeim, sem gerðir voru eftir heims-
styrjöldina síðari, er þó hvorugt
Japönum hsimilt. Þeir eiga eklci
heldur erfitt með að sætta sig við
slíkt. Þeir hafa fengið nóg af hern-
aði og óbeit á honum er rík á
meðal þjóðarinnar. í staðinn hafa
þeir unnið stórkostlega efnahags-
lega sigra út á við eftir heims-
styrjöldina i skjóli lýðræðis og
frjáls framtaks, svo að ekki ein-
ungis snauðar þjóðir Asíu geta
tekið þessa framtakssömu þjóð
sér til fyrirmyndar heldur þjóðir
um allan heim. Dugnaður og geta
Japana er þeim mun athyglisverð-
ari, þar sem iand þeirra er snautt
af hráefnum, og því síður en svo
vel til þess fallið að verða miki'ð
iðnaðarland, heldur jafnvel þvert
á móti. Máttur landsins byggist
fyrst og fremst á fólkinu sjálfu.
Það er dugnaður þjóðarinnaiv