Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1970, Blaðsíða 12

Frjáls verslun - 01.12.1970, Blaðsíða 12
!□ FRJÁLS VERZLUN Sjávarutvegur, fiskiðnaður 1970 — Skuttogaraárið A * I ársbyrjun var einn lítill skuttogari í eigu Islendinga, í árslok verða þeir væntanlega fimm og einn í smíðum — og í smíðum verða þá átta þúsund tonna skuttogarar, erlendis og hérlendis Þegar sögurýnendur síðari tíma taka að skyggnast um öxl og leita að einkennum eða stefnumarkandi framkvsemda- málum iþessa árs, sem er að líða, verður endurnýjun togara- flotans vafalaust þung á metun- um. Það er jafnvel sennilegt að ársins 1970 verði minnzt sem skuttogaraársins vegna hins almenna endurmats á gildi togaraútgerðar fyrir þjóðarbú- skapinn, og vegna þess stórá- taks sem fylgdi í kjölfarið. Um þessar mundir eru 8 skut- togarar yfir 1000 tonn í smíð- um fyrir ríkisvaldið og einka- aðila á íslandi. Tveir þeirra verða smíðaðir í Póllandi, fjór- ir á Spáni og tveir á Akureyri. Pólsku togararnir eru smíðað- ir fyrir Ögurvík hf., af spánsku togurunum munum tveir fara til Bæjarútgerðar Reykjavíkur, einn til Bæjarútgerðar Hafnar- fjarðar og einum er enn óráð- stafað. Útgerðarfélag Akureyr- inga hf. mun fá a.m.k. annan togaranna, sem smíðaðir verða hjá Slippstöðinni hf. á Akur- eyri, en óljósara er með hinn togarann. Upphaflega átti að smíða hann fyrir útgerðarfyrir- tækið Súlur hf., en forráða- maður fyrirtækisins, Leó Sig- urðsson, hefur lýst því yfir, að hann verði að falla frá kaup- um vegna síhækkandi kostnað- ar við smíði togarans. Auk þessa mega íslendingar á næstunni eiga von á 5 skut- togurum af stærðinni 400-600 tonn. Einn þeirra, Dagný, er raunar þegar kominn til Siglu- fjarðar og hefur hafið veiðar. Stálvík hf. í Garðahrepni er með annan 500 tonna togara í smíðum fyrir Siglfirðinga, og þegar hefur verið gengið frá kaupum á þremur frönskum togurum af svipaðri stærð, sem munu fara til Eskifjarðar, Norðfjarðar og Sauðárkróks. ÖGURVÍK REIÐ Á VAÐIÐ. Það var útgerðarfélagið Ög- urvík hf. í Reykjavík, sem reið á vaðið varðandi samninga um smíði á skuttogurum fyrir ís- lendinga. Hinn 13. maí var und- irritaður hér á landi samningur milli Ögurvíkur h.f. og pólska skipasmíðafyrirtækisins Cmie Centromor í Gdansk um smíði á tveimur 1050 tonna skuttog- urum. Mesta lengd er 59.45 metrar og breiddin er 11.30 m. Aðalaflvélar verða um 2.600 hestöfl. Kaupverð hvors togara er áætlað um 110 millj. króna „Trollið er tekið inn að aftan.“ að því er fyrstu fregnir hermdu. Afhenda á fyrri togarann í sept- ember 1972 en hinn tveimur mánuðum síðar. SEX SKUTTOGARAR Á VEGUM RÍKISINS. Skömmu áður en til undirrit- unar þessa samnings kom, voru opnuð tilboð í sex skuttogara (yfir 1000 tonn á stærð), sem ríkisstjórnin hafði heimilað togarnefnd að bjóða út smíði á. Alls bárust átta tilboð — frá Póllandi, Spáni, Bretlandi, Frakklandi, Noregi, V-Þýzka- landi og eitt innlent — frá Slippstöðinni hf. á Akureyri. Verðtilboð voru frá 114.488.000 kr. upp í 202.033.920 kr. Á fundi sínum hinn 21. júlí sl. samþykkti svo borgarráð Reykjavíkur að heimila útgerð- arráði Reykjavíkur að hefja samninga um smíði á tveimur skuttogurum. Áætlað verð hvors togara er 140 milljónir en framlag Bæjarútgerðarinnar og Reykjavíkurborgar mun nema um 42 millj. króna eða um 15% af smíðakostnaði þeirra. Upphæð þessa verður að greiða á tímabilinu frá ágúst 1970 til ársloka 1972. Gert er ráð fyrir, að smíði þessara tog- ara njóti þeirra lánskjara, er ákveðin voru í lögum um kaup á sex skuttogurum, sem sam- þykkt voru á Alþingi 28. apríl sl. Jafnframt var samþykkt á þessum fundi borgarráðs að lána Ögurvík h-f. 7y2 % af smíða kostnaði skuttogaranna tveggja, sem áður er á drepið. í lögum þeim, sem til er vitnað hér að frarnan, er gert ráð fyrir, að ríkisstjórnin veiti kaupendum skuttogaranna (yfir 1000 tonn) frekari lánafyrirgreiðslu, þann-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.