Frjáls verslun - 01.12.1970, Blaðsíða 47
FRJAL5 VERZLU Ní
45
MESTA ATVINNULEYSI
í 30 ÁR
Brezka Hagfræði- og þjóðfé-
lagsfræðistofnunin gaf nýlega
út yfirlýsingu, þar sem hún
skoraði á brezku stjórnina að
falla frá stefnu í launamálum
og setja á að nýju verð- og
launastöðvun, til að stemma
stigu við verðbólgunni í land-
inu. Atvinnuleysi í Bretlandi
er nú hið mesta á sl. 30 árum.
VINSÆLASTA AUGLÝS-
INGAFYRIRSÆTAN?
„Vinsælasta auglýsingafyrir-
sæta ársins“ segja þeir að hún
sé þessi — í sænska vikublað-
inu Se. Þetta er Lisbeth Lund-
quist 26 ára dönsk fyrirsæta
auglýsinga ljósmyndara —
og leikkona að auki, hún fékk
hlutverk í kvikmynd, sem heit-
ir „Rólegir dagar í Clichy“,
eða eitthvað á þá leið. Lisbeth
er trúlofuð, sem út af fyrir sig
hefur ekki úrslitaþýðingu, að
því er sagt er. Hún er alls ó-
feimin í starfi sínu .. . og ein-
hvern veginn hefur henni tek-
izt að afla sér vinsælda í því.
En ekki fæst allt með frægð-
inni. Hún sagði í viðtali í Se:
„Fólk er furðulegt. Margir,
flest eldra fólk, snúa við mér
bakinu og vilja ekki þekkja
mig eftir að þeir hafa séð mig
nakta á mvnd.“
DUNLOP
IIJÓLBARÐAR
M AIISTURBAKKI
f SIMi: 38944