Frjáls verslun - 01.12.1970, Blaðsíða 46
44
FRJALS VERZLUN
~"1
i
Bílaiðna,ður Japana fer stöðugt vaxarídi, og útflutningur bíla t.
d. til Bandaríkjanna, sömuleiðis. Þessir bílar eru tilbúnir til út-
flutnings.
Erlendar fréttir
IJr öllum álfum
AÐSTAÐA Á MANCHESTEK-
FLUGVELLI STÓRBÆTT
Framkvæmdir fyrir 6 millj.
punda munu innan tíðar leiða
til stórbættrar aðstöðu á Manc-
hesterflugvelli í Englandi, sem
er næst stærsti flugvöllur þar í
landi. Eru framkvæmdirnar
einkum miðaðar við að veita
sem fullkomnasta þjónustu
þeim flugvélum, sem reka þot-
ur. Enn frekari umbætur eru
á döfinni, og er búizt við, að á
næstu 5 árum verði varið um
20 milljónum punda til að bæta
aðstöðu á þessum flugvelli.
FISKIRÆKTARSAMBAND
í SKOTLANDI
í Skotlandi hefur verið stofn
að fiskræktarsamband, og eru
aðilar samtök þeirra, sem við
fiskirækt fást þar í landi, svo
og fiskiðnaðarins. Skotar
stunda verulega fiskirækt,
einkum rækta þeir silung, lax
og ýmsar tegundir skelfiska.
Nú þegar flytja þeir út talsvert
af afurðum þessa búskapar,
ekki sízt rækju og ostrur.
Pilchard Fishing Industry, sem
rekur fiskveiðar m. a. við Suð-
vestur-Afríku, veltir 61,6 millj.
dollara á ári. Þessi mynd er úr
einum togara þeirra.
300 ÞÚSUND
TUNNUR Á DAG
Bandaríska olíufélagið Phill-
ips Petroleum, sem leitað hef-
ur olíu undan ströndum Nor-
egs, gaf nýlega út nýja skýrslu,
þar sem segir að fundnar séu
nýjar olíulindir, sem hægt sé
að vinna úr um 10000 tunnur
af olíu á dag. Nú hafa fundizt
olíulindir, sem alls geta gefið
af sér um 300.000 tunnur á dag.
Verði hægt að vinna alla þessa
olíu, verður Noregur næst-
stærsti olíuframleiðandi í Ev-
rópu og meðal 10 stærstu í
heimi.
BENZ VÖRUBÍLAR FRAM-
LEIDDIR í SOVÉTRÍKJ-
UNUM?
Fulltrúar Sovétríkjanna og
v-þýzku bifreiðaverksmiðjanna
Daimler Benz hófu viðræð-
ur að nýju í Moskvu nú fyr-
ir skömmu um hugsanlega
byggingu vörubílaverksmiðju
Benz í Sovétríkjunum, á bökk-
um Kamafljóts um 500 km frá
Moskvu. í áætluninni er gert
ráð fyrir að framleiddir verði
150.000 vörubílar á ári.
Helzta hindrunin í viðræðun-
um mun vera útvegun lánsfjár
frá Vesturlöndum, en til verks-
ins er talið að þurfi 1 milljarð
dollara.
EFNAHAGURJAPANA
SÍBATNAR
Japanska fjármálaráðuneytið
lýsti því nýlega yfir að ef sami
efnahagsvöxtur héldi áfram í
Japan, myndu. Japanir fara
fram úr Sovétmönnum sem
efnahagsstórveldi eftir nokkur
ár. Árlegur vöxtur í Japan er
nú 10-11%, en var 13-14%,
þar til stjórnin fyrirskipaði
lánatkmarkanir, sem voru í
gildi í 13 mánuði. Þessum tak-
mörkunum hefur nú verið af-
létt, eftir að ljóst varð að efna-
hagskerfið var komið niður á
viðunandi vaxtargrundvöll.
NIXON VARAR VIÐ
VERÐBÓLGU
Nixon Bandaríkjaforseti gaf
nýlega út aðra verðbólguviðvör-
unina á stuttum tíma, þar sem
hann varaði við afleiðingunum
af kjarasamningum banda-
rískra bifreiðaverkamanna.
Sagði Nixon að hinar miklu
launahækkanir myndu leiða til
hærra verðs á bandarískum bif-
reiðum og þannig skerða enn
samkeppnisgrundvöll þeirra
við innfluttar bifreiðir. Verka-
mennirnir fengu 21% hækkun
yfir þrjú ár og í yfirlýsingu
Nixons segir að þetta geti haft
alvarlegar afleiðingar í þjóðar-
búskap Bandaríkjamanna.