Frjáls verslun - 01.10.1971, Page 44
argus
Rósir og frostrósir
Rósin í glugganum, augasteinn konunnar, lifir
aðeins í yl stofunnar - úti er íslenzk veðrátta -
hún á líf sitt undir einni rúðu.
CUDO-GLER
um a3 vinna íslenzkri vísinda-
starfsemi þá viðurkenningu,
sem henni ber meðal almenn-
ings, stjórnvalda og í atvinnu-
lífinu. Ráðinu hefur mistekist
að hafa hemil á einþykkum,
ráðríkum og jafnvel uppi-
vöðslusömum einstaklingum í
röðum rannsóknarmanna. Ráð-
ið hefur verið hemill á starf-
semi dugmikilla og hæfileika-
ríkra einstaklinga, og það er
vandséð annað, en að það hafi
átt sinn þátt i að skapa það
slæma andrúmsloft, sem er í
íslenzka vísindaheiminum.
SUNDURLYNDI
VÍSINDAMANNA
Um rannsóknarmenn, sem
einstaklinga og sem hópa, er
hafa sameiginlegra hagsmuna
að gæta, er fátt gott að segja,
ef undan er skilinn hæfileiki
þeirra til að starfa. Hæfileik-
ana skortir ekki og dugnað, en
hins vegar skortir skilning vís-
indamanna sjálfra á því, að við-
unandi úrlausn á málum þeirra
er þeim mun fjarlægari, sem
það dregst að þroska innbyrðis
umburðarlyndi, að ekki sé tal-
að um veglyndi þeirra, hvers
í annars garð. Hófsamur mað-
ur lýsti ástandinu meðal vís-
indamanna með svofelldum
orðum: „Þeir eru með hnífinn
í bakinu á hver öðrum.“
Reyndir stjórnmálamenn hafa
varað við því, að vísindamálin
verði gerð að flokksmáli, vegna
sundurlyndis meðal vísinda-
manna sjálfra.
veitir tvöfalt öryggi,(ytri og innri þétting)
þolir snöggar hitasveiflur, (yfir 39° á klst.)
framleitt með erlendri tækni, þróað við íslenzka
staðhætti í meira en áratug . . .
. . . til þess að öllum megi vera hlýtt inni, blómin í
glugganum lifi,- nema auðvitað frostrósirnar.
CUDO
CUDOGLER HE
SKÚLAGÖTU 26, SÍMI 20650
ENDURSKOÐUN í MOLUM
Á síðasta ári var sett á lagg-
irnar nefnd til að endurskoða
rannsóknarmálin. — Nefndina
skipa einn forstjóri rannsóknar-
stofnunar, tveir fulltrúar rann-
sóknarmanna og framkvæmda-
nefnd Rannsóknarráðs ríkisins,
sem er skipuð fimm mönnum.
Þessi nefnd hefur nánast verið
óstarfhæf, enda þótt flestir, ef
ekki allir nefndarmenn, séu
sammála um, að þörf sé breyt-
inga á skipulagi rannsóknar-
mála. Einkum hefur einstreng-
ingsleg afstaða fulltrúa rann-
sóknarmanna staðið starfsemi
nefndarinnar fyrir þrifum. Svo
virðist vera, sem fulltrúar rann-
sóknarmanna hafi tillögur fram
að færa, sem þeir hnika ekki
frá, til samkomulags við aðra
nefndarmenn, enda þótt slíkt
sé raunar óhjákvæmilegt, ef
einhver niðurstaða á að fást.
44
FV 10 1971