Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 11
Það mun vera Jóni Sig-
urðssyni, ráðuneytisstjóra
í fjármálaráðuneytinu að
þakka, að sendiráð íslands
erlendis fá: nú dag'lega
send skeyti frá útvarpinu
með ágripi af helztu frétt-
um að heiman. Jón var
staddur í Kaupmannar
höfn, er verkfall verzlun-
armanna stóð yfir í vetur
og ofbauð þá, að engar
fréttir um framvind.u
mála bárust sendiráðinu
dögum saman. Ráðuneyt-
isstjórinn kippti þessu í
lag strax er hann kom
heim.
Athygli vakti, að Bald-
ur Óskarsson, Möðruvell-
ingur, skyldi koma heim í
kosningaleiðangur alla
leið frá Tanzaníu í Aust-
ur-Afríku, þar sem hann
er tiltölulega nýtekinn til
starfa. Hafa menn talað
um, að vel væri starfið
launað úr því að Baldur
lagði upp í þetta langa
og dýra ferðalag. En aðrir
ku þó hafa létt undir með
Möðruvellingi. Fullyrt er
að Landsbankinn hafi ver-
ið látinn borga reisuna,
því að Baldur var ein-
hvern tíma kjörinn end-
urskoðandi reikninga
bankans og var hann lát-
inn renna augum yfir þá
í leiðinni.
Senn líður að því, að
Árni Gunnarsson, frétta-
maður, kveðji útvarps-
hlustendur og láti af störf-
um hjá Ríkisútvarpinu.
Árni hefur víst sagt upp
og á það mál sér nokkuð
langan aðdraganda. Ó-
ánægja með starfsaðstöðu
og móralinn almennt lijá
útvarpin,u ræður mestu
um ákvörðun Árna og
eins hefur honum mislík-
að, hvemig ráðherrar
vinstri stjórnarinnar hafa
beitt þrýstingi á starfs-
menn útvarpsins. Þannig
hellti Ólafur Jóhannesson
úr skálum reiði sinnar yf-
ir Árna í vetur fyrir það
eitt, að hann lét þess getið
í útvarpsþætti, að miklar
verðhækkanir hefðu orðið
á nauðsynjavörum. Siinnir
segja, að Árni verði blaða-
fulltrúi Flugleiða h.f.
Mjög misjafnlega er lát-
ið af frammistöðu ís-
lenzku sendiráðanna við
kynningu á íslenzkum
málefnum og þó einkan-
lega á útflutningsvörum
okkar. Forvigismenn út-
flytjenda, munu þó sam-
mála um, að hvergi sé
jafnvel tekið á þeim mál-
um og í Kaupmannahöfn,
þar sem Sigurður Bjarna-
son, sendiherra, vinnur
vel að öllum þáttum ís-
landskynningar og þykir
í því njóta áratugareynslu
sinnar sem blaðamaður
heima á íslandi.
Teikningar að nýrri
flugstöð á Reykjavíkur-
flugvelli liggja á borði
flugmálastjíóra en beðið
er eftir að stjórn sam-
göngumála landsmanna
verði tekin föstum tökum,
áður en hægt verður að
halda framkvæmdum á-
fram. Um er að ræða
glæsilega flugstöðvar-
byggingu fyrir innan-
landsflug og afgreiðslu
farþega, sem fara í milli-
landaflug á Keflavíkur-
flugvelli auk flugskýla og
athafnasvæðis fyrir flug-
vélar. Flugstöðinni hefur
verið hugsaður staður upp
af Nauthólsvíkinni og
norður að austur-vestur
flugbraut Reykjavíkur-
flugvallar. Verði af þess-
um framkvæmdum má
gera ráð fyrir innanlands-
flugi frá Reykjavíkurflug-
velli fram yfir árið 2000.
Starfsmenn fjármála-
ráðuneytisins fyllast
skelfingu við tilhugsunina
um að ef til vill verði
bæði kratar og kommún-
istar í næstu ríkisstjórn.
Óttast þeir að kapphlaup-
ið milli kratanna og
kommanna í peninga-
austri til margs konar
„velferðarmála“ verði svo
mikill, að ríkissjóður
muni ekki standa undir
því. Magnús Kjartansson
hefur þegar sett algjört
met í að skrifa upp á hina
og þessa „velferðarreikn-
inga“ án þess að fyrir
hendi væru peningar til
að borga þá.
Eini ljósi punkturinn í
sjávarútvegsmálum þjóð-
arinnar ,um hessar mundir
er stórhækkað verð á
skreið á erlendum mark-
aði. Nígeríumarkaður hef-
ur opnazt að nýju og bú-
ast skreiðarframleiðendur
við að fá 80% hærra verð
fyrir afurðir sínar en var
í fyrra.
Meðal nokkurra æðstu
embættismanna þjóðar-
innar er Stjórnarráðshús-
ið í daglegu tali nefnt
„Tjæreborg“ eftir að
Helgi Hóseasson gekk þar
til verks á þjóðhátíðar-
daginn.
FV 5-6 1974
11