Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 75
stigi. Áhaldahús fyrir hrepp-
inn verður væntanlega byggt
í sumar. Á s.l. ári var unnið
myndarlega að undirbúningi
gatna undir varanlegt slitlag
og gert ráð fyrir að malbika
næsta sumar tvær af aðalgöt-
unum. Þá verðiur á næsta
sumri hafizt handa um bygg-
ingu 12 íbúða fjölbýlislhúss á
vegum sveitarstjórnarinnar, og
áform eru uppi um byggingu
24 leiguíbúða.
Almennur áhugi er meðal í-
búanna um íbúðarhúsabygg-
ingar, en landþrengsli á eyr-
inni valda nokkrum erfiðleik-
um.
Á fjárlögum 1974 var veitt
fjármagn til byrjunarfram-
kvæmda við flugvöll, sem
gerður verður með uppfyllingu
á grynningum við eyrina.
Verða væntanlega gerðar
nauðsynlegar botnrannsóknir á
væntanlegu flugvallarsvæði á
þessu sumri.
Jarðvarmi er í nágrenni
Suðureyrar og eru menn þess
fýsandi að rannsakað verði,
hvort unnt er að ná upp svo
miklum hita, að hann sé nýt-
anlegur til hitaveitu í kaup-
túninu.
Bolungarvík:
f Bolungarvík hefir orðið
mest hlutfallsleg fólksfjölgun
af þéttbýlisstöðum á Vest-
fjörðum, þegar litið er á tíma-
bilið frá byrjun síðari heims-
styrjaldar. íbúar eru nú 1000.
Hafnarframkvæmdir hafa
verið aðalverkefni sveitarfé-
lagsins um áratuga skeið.
Megin hlutanum af fram-
kvæmdafé sveitarsjóðs hefir
hverju sinni verið varið til
þess verkefnis, enda er höfn-
in aðalforsenda öflugrar út-
gerðar. Á þessu ári næst vænt-
anlega sá mikilvægi áfangi, að
unnt verður að geyrna skipa-
og bátaflota Bolvíkinga í höfn-
inni í hvaða veðrum sem er,
en lengst af hefir þurft að
leita skjóls með þá í ísafjarð-
arhöfn, þegar veður voru vá-
lynd.
Þrátt fyrir takmarkað fram-
kvæmdafé hefir verið hrundið
í framkvæmd myndarlegum
verkefnum. Byggt var fyrir
fáum árum mjög myndarlegt
skólahús fyrir barna- og miðr
skólann. Nú er í byggingu
sundhöll og íþrótthhús í einu
húsi, og standa vonir til þess,
að unnt verði að taka sund-
höllina í notkun veturinn
1975, og verður þá unnið að
því að fullgera íþróttahúsið.
Unnið er að því að fullgera
ráðhúsbyggingu, sem er sam-
eign hreppsins, Sparisjóðs
Bolungavíkur og ríkissjóðs,
sem á þar húsnæði fyrir lög-
reglustjóraembættið. Auk
skrifstofu og fundahúsnæðis
verður í húsinu bókasafn
hreppsins og slökkvistöð. Unn-
ið er að undirbúningi gatna-
kerfisins vegna væntanlegrar
malbikunar, og ráðgert að
malbika aðalumferðargöturn-
ar strax á þessu sumri.
Verið er að hefjast handa
um byggingu fjölbýlishúss á
vegum sveitarfélagsins oð ráð-
gert er að byggja milli 20 og
30 leiguíbúðir, eða eftir því,
sem leyfi fæst til. Mikill fram-
kvæmdahugur er í einstakling-
um í húsbyggingamálum.
í Bolungarvík er starfrækt
eitt afkastamesta frystihús
landsins og útgerð er rekin af
dugnaði og fyrirhyggju. Skut-
togari mun bætast í flota Bol-
víkinga á þessu sumri.
FV 5-6 1974
75