Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 39
*
Júlíus S. Olafsson framkvæmdastjóri:
Bílgreinin er í örri þróun, en mörg
vandamál bíða úrlausnar.
Bílgreinasambandið er landsamband allra helztu fyrirtækja í bílgreininni á Islandi, og var stofn-
að 14. nóvember 1970 með samruna tveggja félagasamtaka. Tilgangur sambandsins er að efla
samtök og samstarf allra bifreiðafyrirtækja í landinu og stuðla að heilbrigðri þróun þeirra —
að berjast fyrir bættum starfsaðferðum og viðskiptaháttum innan starfsgreinarinnar, svo að
leiði til hagkvæms og arðbærs rckstrar fyrirtækjanna — að gangast fyrir rannsóknum og upp-
lýsingasöfnun, sem þarfir sambandsins krefjast— að stuðla að umferðarmenningu og 'umferð-
aröryggi eftir því, sem í valdi þess stendur — að stofna til, skipuleggja og halda svningar á
hifreiðum og hlutum tengund'um þeim og iðnað inum í heild.
Hinn 1. janúar 1974 var
bifreiðaeign landsmanna ca. 63
þúsund þar af 56.700 fólks-
bílar og 6.300 vöruflutninga-
bílar. Innan bílgreinarinnar
munu vera starfandi rúmlega
200 fyrirtæki, sem annast við-
gerðarþjónustu, bílasölu o. s.
frv. Af þessum fjölda eru
rúmlega 100 í Bílgreinasam-
bandinu, þar af öll stærstu
fyrirtækin á þessu sviði.
Starfsmenn fyrirtækja innan
Bílgreinasambandsins munu
vera rúmlega 1000, og skiptist
sá hópur í skrifstofufólk, bif-
vélavirkia og hjálparmenn á
verkstæðum.
BÍLAINNFLUTNINGUR.
Fimm algengustu fólksbíla-
tegundir á íslandi eru: Volks-
wagen, Ford, Moskvitch, Fiat
og Land Rover. Á íslandi
geysar nú mikil verðbólga í
efnahagslífinu og hefur gengi
íslenzku krónunnar verið að
falla gagnvart erlendum mynt-
um af þeim sökum á undan-
förnum mánuðum. Innflutning-
ur hefur aukizt mikið til
landsins á undanförnum mán-
uðum, m. a. á bílum, og hefur
fall krónunnar verið það
hægt, að það hefur haft lítil
áhrif á innflutninginn til
þessa. Ríkisstjórnin hefur þó
gert ráðstafanir til þess að
minnka bílainnflutning, m. a.
er nú 35% auka innflutnings-
gjald á cif-verðmæti bíla auk
þess hefur hún frá 20. mai
tekið upp 25% innborgunar-
skyldu, þar sem að 25% af
fob-verði vöru skal nú greið-
ast inn á bundinn reikning í
gjaldeyrisbanka og geymast
þar í 3 mánuði gegn 3%
Bílaverkstæðin hafa haft ákveðið kerfi til útreiknings á tíma-
útsölunni, en þa'u eiga nú við töluverðan vanda að stríða, hvað
verðlagsmál snertir.
vöxtum. Þetta á við mest all-
an innflutning, ekki bara bíla.
Meðlimir Bílgreinasambands-
ins sjá því fram á, að verulega
muni draga úr bifreiðainn-
flutningi á næstu mánuðum.
VERÐLAGSMÁL.
Á sama tima hafa bifreiða-
verkstæðin átt við verulegan
vanda að stríða, hvað verð-
lagsmál snertir.
Verðlagsmálin eru mjög viðr
kvæmt svið innan íslenzkrar
efnáhagsmálastjórnar. Fjórum
sinnum á ári hækka laun sam-
kvæmt kaupgjaldsvísitölu,
sem reiknuð er út á grund-
velli framfærsluvísitölu. Á s.l.
ári hækkuðu laun um 25% og
reikna má með því að á þessu
ári muni laun hækka um 50%
þ. e. taxtalaun og launaskrið
innifalið. Þetta er m. a. afleiðr
ingar af kjarasamningum, sem
gerðir voru í marz sl. að loknu
allsherjarverkfalli sem stóð í
viku. Bílaverkstæðin hafa
fengið að hækka verð á viðr
gerðum, sem nemur hækkun á
launalið, en sá hluti verðsins
sem á að dekka „overhed",
fastakostnað og hugsanlegan á-
góða hefur verið haldið föst-
um í ákveðinni krónutölu. Nú
er í gildi verðstöðvun, sem
revndar hefur verið meira og
minna í gildi frá september
1970, en fyrir þann tíma höfðu
verkstæðin frjálsa álagningu.
Síðan í ianúar 1972 hafa
bílaverkstæðin haft ákveðið
FV 5-6 1974
3!)