Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 29
ursdóttur, dóttur Péturs Jóns-
sonar og Þuríðar konu hans,
sem hér bjuggu og ráku gist-
ingu. Það mun hafa verið ár-
ið 1942 að þau byrjuðu hótel-
starfsemi í smáum stíl í íbúð-
arhúsi sínu, en á árunum 1949
-1951 reistu þau nýja hótel-
byggingu, þar sem upphaflega
var hægt að 'hýsa gesti í 10
herbergjum á neðri hæð og í
risi en á neðri hæðinni var
líka matsalurinn og gldhúsið,
sem enn er notað. Árið 1961
voru svo byggð nokkur her-
bergi ofan á veitingasalinn en
á árunum 1967 og 1968 var
aðstaðan endurbyggð og hér
eru núna 28 gistiherbergi, þar
af 8 herbergi með sturtu og
sérsnyrtingu.
F.V.: — Nú eru fleiri aðilar
með' svipaða starfsemi og þið
hér við Mývatn. Hvað er
hægt að' taka á móti mörgum
gestum samtímis í gistingu
hér á svæðinu?
Arnþór: — Það er hótel-
rekstur í Reykjablíð og einnig
í skólanum hjá Skútustöðum.
Hér hiá okkur er hægt að
taka á móti 70 manns, í
Reykjahlíð 20-25 manns og í
skólanum um 80 manns, en
þar er bæði um að ræða upp-
búin rúm og svefnpokapláss.
F.V.: Hefur verið grundvöll-
ur fyrir því. að þú starfaðir
sem hótelstjóri allt árið allar
irötur síða.n bú fl’uttist hingað
til Mývatns?
Arnþór: — Nei. f byrjun
var ég hér aðeins á sumrin en
starfaði á veturna í kaupfélag-
inu á Vopnafirði og kona mín
stundaði þar kennslu. En 1959
fluttumst við alfarið hingað og
ég hafði strax mikla ánægju
af að standa í þessu stússi en
snemma kom þó í Ijós, að ekki
var grundvöllur fyrir starfi
hótelstiórans nema 4—5 mán-
uði á árinu. Því var það 1963,
að við keyptum nokkrir félag-
ar steypustöð frá Akureyri,
sem heitir nú Léttsteypan.
Hún framleiðir miliiveggja-
stein og holstein, sem er seld-
ur víða um nágrannabyggðar-
löein, til Akureyrar og Húsa-
víkur og austur á land.
F.V.: — Hverjar finnast þér
áberandi hreytingar hótel-
rekrturs hér við Mývatn og
samsetningu gestahópsins mið-
að við fyrstu ár þín hér?
Arnþór — Þegar ég kynnt-
ist þessu fyrst af eigin raun,
var starfsemin með allt öðru
sniði, því að útlendingar
voru sárafáir á ferðinni þá.
Segja má, að 1959 hafði
orðið vart verulegra breytinga
með því að útlendingar fóru
að venja komur sínar hingað
og fór heimsóknum þeirra æ
fjölgandi fram á síðasta ár.
Fuglaskoðarar voru fyrstir en
siðan almennir túristar.
Þegar boðið var upp á eins
dags ferðir frá Reykjavík
hingað norður með flugi til
Akureyrar og bílferð til Mý-
vatns gátu æ fleiri veitt sér
að koma hingað. Enn eru
þessar dagsferðir í fullu gildi,
þó að farþegarnir séu færri
en undanfarin sumur. Þó fá-
um við oft 40 manna hÓDa í
m"t til okkar en hér höfum
við aðstöðu til að bera fram
veitingar fyrir 150 manns í
ein’\
Ég vil sérstaklega geta
þess, að það var ferðaskrif-
stofan Lönd og leiðir sem á
smum t,ima bryddaði unn á
bessu nýmæh. að gefa ferða-
fólki kost á að fara hingað
norður í land og skoða Mý-
vatnssvæðið og fara aftur til
Peykjavíkur, allt á einum
degi. Þetta er aðeins ein af
mörgum ágætum nýjungum.
sem það fyrirtæki kynnti í
ferðamennskunni og tel ég það
hafa verið mikinn skaða fyrir
skinulagningu innanlandsferða
á Islandi, að ekki var fj'ár-
hagslegur grundvöllur fyrir á-
framhaldandi starfrækslu
Landa og leiða.
F.V.: — Horfir málið þann-
ig við, að túristarnir þeysist
hér allir ’uim svæðið á einum
degi og hafi hér yfirleitt ekki
Iengri viðdvöl?
Arnþór: — Nei, það eru marg-
ir, sem hér halda kyrru fyrir
í tvær eða þrjár nætur. Við
höfum haft ágæta samvinnu
við Ferðaskrifstofu Zoéga og
Ferðaskrifstofuna Útsýn, sem
senda hingað hópa, er skoða
sig um í Mývatnssveit í einn
til tvo daga. Ferðaskrifstofa
’úkisins hefur líka sent sína
hópa hingað og ferðaskrifstof-
ur Bennetts og Scantours í
Bretlandi voru líka tíðir gestir
en bað er meira og minna
dottið niður.
F.V.: — Hvað gista hér
margir ,á ári?
Arnþór: — Á þessu fjögurra
mánaða ferðamannatímabili,
sem um er að ræða, reiknast
okkur til að gistinæturnar séu
um 5000. Útlendingar hafa til
þessa verið í langmestum
meirihluta og íslendingar oft-
ast ekki komizt að, því að
búið hefur verið að Danta fyr-
irfram fyrir hópana löngu áð-
ur. Nú breytist þetta. í júní-
mánuði í ár hygg ég að fjöldi
útlendinga hér á hótelinu hafi
verið 30% minni en í fyrra.
Afoantanir ferðaskrifstofanna
segja líka sína sögu um,
hvers sé að vænta.
F.V.: Og hvað teljið þið að
mikill fjöldi þeirra ferða-
manna. sem til íslands koma,
leggi leið sína um Mývatns-
svæðið?
FV 5-6 1974
2(1