Frjáls verslun - 01.06.1974, Blaðsíða 69
Vestf irftir:
Mjög mikið spurzt fyrir um mögu-
leika á búferlaflutningum vestur
Dæmi um allt að 11% fjölgun ■ byggðarlagi á einu ári. Johann T. Bjarnason,
framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga í Vestfjarðakjördæmi greinir
frá helztu framkvæmdum og atvinnulífi í kjördæminu.
Hinn 1. desember 1972 voru 9.927 íbúar á Vest-
íjörðum í 32 sveitarfélögum. Af þeim bjuggu 7.383
í þéttbýli, 2544 í sveitum. Rúmlega helmingur íbú-
anna átti heima í þremur sveitarfélögum, þ. e. Isa-
firði, Bolungarvík og Patreksfirði, eða samtals
5.045 manns. í fámennasta hreppnum bjuggu 26 í-
búar.
Um langt árabil fækkaði í-
búum á Vestfjörðum. Sú
fæk'kun hefir gengið mjög mis-
jafnlega yfir; einkum hefir
fækkað í sveitum. Umtalsverð
fjölgun hefir orðið í nokkrum
byggðarlögum, t. d. Bolungar-
vík, Patreksfirði og Suðureyri,
ef litið er á tímabilið 1940-
1970. Þau umskipti hafa nú
orðið, að fólki hefir ekki
fækkað á Vestfjörðum sl. tvö
ár. Áberandi er, að fólks-
fjölgunin er nú hvað örust á
þeim þéttbýlisstöðum, þar sem
fólksfækkun var hvað mest áð-
ur. Eru dæmi um allt að 11%
fjölgun á einu ári. Athyglis-
vert er, hve hlutfall ungs
fólks hefir aukizt.
• MARGIR VILJA FLYTJA
VESTUR.
Mjög mikið hefir verið
spurzt fyrir um möguleika á
búferlaflutningum til Vest-
fjarða undanfarin 2-3 ár, enda
hefir atvinna á Vestfjörðum
verið mjög mikil og atvinnu-
tekjur betri en víðast hvar
annars staðar. Skortur á íbúð-
arhúsnæðd hefir hins vegar
komið í veg fyrir, að hægt
væri að taka við öllu því fólki,
Jóhann T. Bjarnason.
sem flytja vill til Vestfjarða.
Sem dæmi um þennan áhuga
má nefna, að fleira fólk flutti
búferlum frá Reykjavík til
Vestfjarða á árinu 1972 en
þeir, sem hurfu frá Vestfjörð-
um til Reykjavikur.
Hér á eftir verða rakin
helztu verkefni, sem unnið er
að á vegum sveitarfélaga á
Vestfjörðum og lítillega drep-
ið á almennar framkvæmdir.
Reykhélar:
Barðastrandar-
hreppur:
Stofnað hefir verið hlutafé-
lag í eigu ríkisins, sveitarfé-
laga í sýslunni, erlendra aðila
og einstaklinga, til að byggja
og re'ka þangvinnsluverk-
smiðju á Reykhólum. Verður
um miklar framkvæmdir að
ræða og rekstur verksmiðjunn-
ar mun veita talsverðum
fjölda manna atvinnu. Stað-
setning verksmiðjunnar bygg-
ist á jarðhita og auðveldum
aðdrætti hráefnis til vinnsl-
unnar. Er þess að vænta, að
verulegt byggðahverfi mynd-
ist á Reyikhólum í kring um
þessa starfsemi, enda ætti hag-
kvæm hitun íbúðahúsnæðis
FV 5-6 1974
69