Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 22
Þegar málið er kannað ofan i kjölinn kemur í ljós að Finnar hafa gengið með skertan hlut frá boiði í þeim viðskiptum. Oliuútflutningsverð Sovétríkj- anna er bundið heimsmarkaðs- verði olíu, og eru Finnar því neyddir til að kaupa olíuna hæsta verði, og af þeim sökum er viðskiptajöfnuður þeirra við Sovétríkin nú vægast sagt afar óhagstæður Finnlandi. Ekkert bendir til þess að breyting verði á þessu í náinni framtíð. RAFORKA EINNIG FRÁ SOVÉTRÍKJUNUM Finnar kaupa einnig raforku og jarðgas frá Sovétríkjunum og fyiir orkuna greiða þeir með finnskri framleiðslu. Finn- ar álitu til skamms tíma að betra væri að kaupa umrædda orkugjafa á heimsmarkaði gegn greiðslu í gjaldeyri, en ekki með vöruskiptaverzlun, eins og nú tíðkast. Til þess að stunda slíka verzlun urðu þeir að ílytja vörur sínar til ríkja, sem greiddu fyrir þær í hörð- um gjaldeyri. Óstöðugir mark- aðir og efnahagssamdráttur viða u.m lönd lék finnska gjald- eyrissjóðinn illa og gjaldeyris- sjóðir Finna minnkuðu veru- lega. Finnar gripu þá til þess ráðs að flytja inn enn meiri olíu frá Sovétríkjunum og sam- hliða því juku þeir útflutning sinn þangað. VEKÐHÆKKANIR OG SAMDRÁTTUR Verð á innfluttum orkugjöf- um hækkaði um 13% árið 1973, eða um £262 millj. og um 21% árið 1974 eða um £687 millj. Til skar.ims tíma keyptu V-Evrópuríki % hluta heildarútflutnings Finna, en samdráttur í efnahagslífi Vest- urlanda setti strik í reikning- inn. Sovétmenn kaupa einna mest af vélum, iðnaðartækjum og heilum verksmiðjum frá Finnum og auk þess skip af ýmsum gerðum og stærðum. Þar að auki hafa finnsk verk- takafyrirtæki fengið stór verk- efni austan landamæranna, allt austur til Síberíu. Þar má m. a. nefna Norlisk-verkið, þar sem Finnar byggja nú kopar- og nikkelbræðslu og eru áætlaðar tekjur af verkinu um £190 millj. í Svetogorsk, sem er rétt, austan landamæranna, vinna Finnar við annan áfanga um- fangsmikillar pappírsverk- smiðju, sem á að skila af sér £ 170 millj. hagnaði, þ. e. a. s. ef þeir selja Rússum einnig all- an vélakost verksmiðjunnar. Verkefni á bo:ð við þessi hafa dregið stórlega úr óhagstæðum viðskiptajöfnuði Finnlands og Sovétríkjanna. Þessi þróun við- skiptamálanna hefur nú gert Sovétmenn að stærstu við- skiptaþjóð Finnlands. Viðskipt- in hafa einnig oiðið til þess að sannfæra Finna (og ýmsa aðra) um að Sovétmenn noti Finnar hafa selt Rússum papp- írsverksmiðjur til að minnka hallann í viðskiptum sínum við þá. þau, sem pólitísk vopn til að færa Finnland lengra og lengra inná umráðasvæði sovésku valdhafanna. Sumir Finnar halda því fram að það eina sem ráðamenn í Kreml þurfi nú að gera til að múlbinda Finnland, sé að skrúfa fyrir olíuleiðsluna til Finnlands í smá tíma. EKKI ALLIR JAFN SVART- SÝNIR Ýmsir aðilar eru á öndverð- um meiði í þessum efnum og segja að innan nokkurra ára eigi ástandið eftir að gjörbreyt- ast. Finnar eiga nú þegar nokkrar olíuhreinsunarstöðvar, sem geta hreinsað 10 milljónir lesta á ári, en verið er að auka afkastagetu þeirra í 14 millj- ónir lesta og verður því marki náð innan tíðar. Árið 1974 var heildar hráolíuinnflutningur Finna um 9 millj. lesta, en ár- ið ’76 verður að hækka þetta magn í 14 milij. lesta, eða um 5 millj., til þess að fyrrnefndar verksmiðjur fái nægileg hrá- efni til vinnslu. Sovésk stjórn- völd hafa gefið Finnum það til kynna að þeir geti ekki selt þeim allt þetta olíumagn og verði að binda olíukvótann við 6,5 millj. lesta á ári, eins og hann er nú. Finnland kaupir 3 millj. tonna af olíu á ári frá olíuríkjum Miðausturlanda og nú beina Finnar (eins og ís- lendingar) augunum til Noregs í þeirri von að Norðmenn geti selt þeim þá olíu sem á vantar innan tíðar. ORKUÞÖRFIN EYKST UM 70% 1973—85 Finnskir orkufræðingar halda því fram, að orkuþörf Finnlands eigi eftir að aukast um 70% á árunum frá 1973 til ’85. í ár er olían 52% af heild- arorkugjöfum landsins, en yfir- völd hafa gert áætlun um að minnka olíuþörfina í 44% árið 1985. í stað olíu ætla þeir að nota kjarnorkuna. Árið 1985 á kjarnorkuframleiðslan að nema 20% af heildarorkuþörfinni. Sovétmenn eru að smíða tvö kjarnorkuver í Finnlandi, sem verða tilbúin 1977 og 1978. Svíar eru að smíða þriðja kjarnorkuverið, sem á að taka í notkun 1978 og enn annað, sem á að vera tilbúið 1980. Þá er ákveðið að kaupa tvö til við- bótar frá Sovétmönnum innan tíðar. 22 FV 10 1975
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.