Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 70
Nýtt
verzlunarhús
í Ólafsvík.
Á efri
hæðinni eru
verbuðir,
sem notaðar
eru sem
gistihús
á sumrin.
Annað
verzlunarhús,
sem nýlega
var byggt
í Ólafsvík.
und manna bæ. Margar félags-
legar framkvæmdir hafa þurft
að bíða vegna aðkallandi verk-
efna við hafnarframkvæmdir
en þó er nú búið að steypa 1,5
km. af aðalgötunni og er hún
9 m breið. Ólafsvík er einnig
aðili að samstarfi kauptúna á
Snæfellsnesi um lagningu var-
anlegs slitlags á götur og hef-
ur efni til þess verið tekið og
malað í landi Ólafsvíkur.
Væntanlega hefst blöndun
næsta vor og þá verður lagt
á fleiri götur á staðnum, lík-
lega tvo kílómetra.
Mælingar á heitu vatni 1
nágrenni Ólafsvíkur voru gerð-
ar fyrir tveim árum og sýndu
þær jákvæðar niðurstöður. í
fyrra var svo framkvæmd til-
raunaborun niður á 168 m
dýpi, en niðurstöður þeirrar
borunar voru ekki jákvæðar.
Þó er ekki öll von úti enn, ef
dýpra yrði borað, og standa
vonir til að unnt verði að gera
það í náinni framtíð. Neyslu-
vatn er hins vegar nægilegt og
gott og í fyrra var tekinn í
notkun 500 tonna miðlunar-
geymir. Vatnsveitan er annars
síðan ’62 og er vatnið tekið úr
iindum í 4 km. fjarlægð frá
Ólafsvík, uppi í fjalli.
MIKILIj ÍÞRÓTTAÁHUGI
Vonast er til að skólabygging
í Ólafsvík komist á næstu fjár-
lög en búið er að teikna og
hanna nýjan skóla í tengslum
við byggingarnar frá ’54 og ’62.
260 nemendur eru á skóla-
skyldualdri og er skólinn orð-
inn svo þröngur, að reisa varð
tvær bráðabirgðastofur við
hann í ár. Áætlað er að bygg-
ing nýja skólans og endurbygg-
ing eldri húsa muni kosta um
100 milljónir og verður þá
fullkominn grunnskóli í Ólafs-
vík. Fyrir nokkrum árum var
byggt íþróttahús og sundlaug
og til stendur að endurbyggja
íþróttavöllinn, sem er í tengsl-
um við þau mannvirki, alveg á
næstunni, enda íþróttaáhugi
unglinga mikill og vaxandi á
staðnum.
Heilsugæslustöð er í Ólafsvík
og nær læknishéraðið yfir Ól-
afsvíkurhrepp, Neshrepp, Fróð-
árhrepp, Breiðuvík og Staðar-
sveit. Þar starfa tveir læknar,
tvær hjúkrunarkonur og tann-
læknir. Aðstaðan er ekki nægi-
lega góð en vonir standa til að
fjármagn fáist til að byggja
stöðina upp á næstu árum.
Þrátt fyrir að héraðið sé ekki
fjölmennt er yfirdrifið að gera
fyrir læknana vegna atvinnu-
hátta fólksins.
Hreppurinn rekur barna-
heimili fyrir 43 börn, en kven-
félagið stofnaði það upphaf-
lega. Nú hefur fengist leyfi til
að hefja framkvæmdir við nýtt
dagheimili og er stefnt að þvi
að byrja á því á næsta ári. Allt-
af er biðlisti eftir plássi enda
hlaupa margar húsmæður und-
ir bagga við fiskvinnsluna.
ÓFULLKOMIÐ FÉLAGS-
HEIMILI
Þrátt fyrir mikinn félags-
anda og félagslif í Ólafsvík er
þar aðeins lítið og ófullkomið
félagsheimili, utan safnaðar-
heimilisins, og er það aðallega
notað undir biósýningar. í sum-
ar var dælt upp úr gömlu höfn-
inni í 7000 fermetra uppfyll-
ingu, þar sem nýtt félagsheim-
ili á að rísa og í vetur verður
væntanlega leitað eftir tillög-
um um þá byggingu, hvað sem
áframhaldið verður alveg á
næstunni. Bærinn og útgerðar-
menn stofnuðu hlutafélag til að
leysa skortinn á verbúðum og
hafa 17 fullkomnar verbúðir,
með beitingaraðstöðu, veiðar-
færageymslu og frystiaðstöðu,
verið reistar á undanförnum
árum. Á sama tíma gerðu út-
gerðarmenn og fiskvinnslu-
stöðvarnar annað hlutafélag
um byggingu ofan á 900 fer-
metra verslunarhús, þar sem
herbergi eru fyrir aðkomufólk,
sjómenn og fiskvinnslufólk. Þar
verður einnig opnaður á næst-
unni stór matsalur og setustofa
og verður þetta húsnæði jafn-
framt rekið sem hótel. Þar mun
Landsbaki íslands einnig opna
útibú í vetur til mikils hag-
ræðis. Annað sameiginlegt á-
tak Ólafsvíkinga er kirkjubygg-
ingin, en kirkjan var vígð ’67.
Meira en helmingur kostnaðar
við hana var gjafafé og nú ný-
lega voru gefnir í hana gluggar
eftir Gerði Helgadóttur fyrir
röskar þrjár milljónir. Fleiri
dæmi mætti nefna um samhug
Ólafsvíkinga.
70
FV 10 1975