Frjáls verslun - 01.10.1975, Page 57
Stykkishólmur
Meirihluti vinnuaflsins starfar
hjá iðnfyrirtækjum
Tvö ný fiskvinnslufyrirtæki sett á stofn
Atvinnuskiptingin í Stykkisholmi er frabrugðin atvinnuskiptingu flestra sjavarkauptúna á landinu
að því leyti til að iðnaður stendur þar traustum fótum og er umfangsmikill. Meirihluti vinnuafls í
Stykkishólmi vinnur við iðnað. A staðnum eru t. d. 80 iðnaðarmenn, sem er hátt hlutfall á ekki
stærri stað en íbúar eru alls 1180. Þar má t. d. nefna skipasmíðastöð, þrjár trésmiðjur o. fl. Að
sögn sveitarstjórans, St'urlu Böðvarssonar, hefur þetta þá kosti í för með sér, að tekjur manna eru
mun stöðugri en þegar eingöngu er byggt á sjávarútvegi. Fólk hefur einnig um fleiri atvinnugrein-
ar að velja en eingöngu sjávarútveginn. Varðandi sjávarútveginn hel'ur skelfiskvinnslan, sem er
einkennandi fyrir Stykkishólm, jafnað atvinnuástandið þar verulega. Bátum hefur einnig fjölgað
og tvö ný fiskvinnslufyrirtæki verið sett á stofn. Vegna legu Stykkishólms við miðin taldi Sturla
réttlætanlegt að gera þaðan út
næstunni.
Tekjur Stykkishólmshrepps
eru tæpar 80 milljónir króna í
ár og eru þær notaðar til marg-
víslegra framkvæmda. T. d.
standa nú yfir verulegar hafn-
arbætur, sem er bygging 50
metra viðlegukants og gjör-
breytir hann allri aðstöðu í
höfninni. Áætlaður kostnaður
er 30 milljónir. Þá stendur
einnig til að byggja nýja bíla-
vog í tengslum við höfnina,
væntanlega á næsta ári. Einn-
ig, skv. fjögurra ára áætlun
um hafnarframkvæmdir í land-
inu, að endurbæta dráttarbraut
Skipavíkur og byggja þar við-
gerðarbryggju, enda eru skipa-
smíðar snar þáttur í atvinnulífi
Stykkishólmsbúa. Af fleiri fyr-
irhuguðum hafnarframkvæmd-
um má nefna lengingu svo-
nefndrar Steinbryggju.
Búið er að vinna fyrir um 20
milljónir í gatnagerð á þessu
ári við undirbyggingu og lögn
slitlags. í nýjum hverfum eru
skuttogara og sagði ekki ólíklegt
Sturla Böðvarsson,
sveitarstjóri.
göturnar undirbyggðar og
gengið frá lögnum áður en
bygging húsa við þær hefst.
Varla hefst þó undan þar sem
mikil eftirspurn er eftir lóðum
og var 22 einbýlishúsalóðum
úthlutað í ár, 25 einbýlishús
eru í byggingu og eitt fjölbýlis-
hús. Fer drjúgur hluti af tekj-
ið sá möguleiki yrði kannaður a
um hreppsins til þessara gatna-
framkvæmda.
GATNAGERÐ
Búið er að steypa hluta af að-
algötu og til stendur að steypa
slitlag á um 350 metra af göt-
unum á næsta ári. Að öðru
leyti á að leggja olíumöl á
gatnakerfið. Búið er að vinna
efni til olíumalargerðar i sam-
vinnu við önnur sveitarfélög á
Snæfellsnesi. Nú standa fyr-
ir dyrum samningar við Olíu-
möl hf. um að bianda oliumöl
úr þessu efni og standa vonir
til að næsta sumar verði hægt
að leggja olíumöl á eitthvað af
götum í Stykkishólmi.
NÆGILEGT LANDRÝMI
Landrými er nægilegt um ó-
fyrirsjáanlega framtíð og er nú
unnið að deiliskipulagi tveggja
nýrra hverfa, iðnaðarhverfis og
FV 10 1975
57