Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 63
Gestssonar. Atvinnuástandið er
orðið mjög öruggt og jafnt
vegna stöðugs hráefnisstreymis
til staðarins. Hinsvegar er
hraðfrystihúsið ekki nægilega
vel búið undir að taka við öll-
um aflanum úr togaranum og
þarf að aka hluta aflans annað
til vinnsiu, einkum karfanum.
Brýnt verkefni er að ráða bót
á því ástandi.
GÖTUR UNDIRBYGGÐAR
FYRIR LÓÐAÚTHLUTUN
Hafist var handa um bygg-
ingu 12 nýrra íbúðarhúsa í
Grundarfirði í ár. Þar er lóðum
úthlutað jafnóðum við götur,
sem búið er að undirbyggja
áður. Árni sagði þau vinnu-
brögð spara stórfé, jafnvel
fimmfalda upphæð miðað við
að byggja götur og leggja í
þær eftir að byggt hefur verið
við þær. Landrými er nægilegt
um ófyrirsjáanlega framtíð þar
sem kauptúnið keypti nýlega
stórt land, sem að því liggur,
og heitir Hellnafell.
Húsnæðisekla er hinsvegar
tilfinnanleg og þar við bætist
að byggingartíminn er langur
vegna skorts á iðnaðarmönnum
og taldi Árni að stöðluð eða
verksmiðjuhús væru það eina,
sem gæti bætt úr þessu ástandi.
Sótt hefur verið um að fá að
byggja leiguhúsnæði skv. áætl-
un Húsnæðismálastofnunarinn-
a^ um uppbyggingu þessháttar
húsnæðis á landsbyggðinni, en
ekki hefur borist svar við þeirri
málaleitan enn. Að áliti Árna
myndi það einnig stuðla að ör-
ari uppbyggingu, ef verktakar
fengju lán til að byggja fok-
held hús og selja síðan.
Höfnin er orðin allt of þröng,
en nú er unnið að miklum
hafnarbótum, fyrir 36 milljónir
í ár, en verkið virðist ætla að
vinnast betur en reiknað var
með þannig að meira vinnst
fyrir þessa upphæð en búist
var við. Verið er að byggja út
grjótgarð austan við kauptúnið
og við það myndast ný höfn
þannig að bátar þurfa ekki að
liggja við löndunarbryggjurn-
ar, heldur geta þeir landað þar.
Reiknað er með að hluti nýju
hafnarinnar komist í gagnið á
næsta ári.
Nýtt
skólahús
í
Grundar
firði.
NÝR SKÓLI OG SUNDLAUG
Frágangur nýja skólans og
bygging sundlaugar eru meðal
mála efst á baugi hjá sveitar-
stjórninni. Sjómenn og kven-
félagið hafa gefið til sundlaug-
arinnar, og það sem hún er
komin áleiðis, er mest fyrir
gjafafé. Búið er að reisa bún-
ingsherbergi fyrir sundlaugina
og væntanlegt íþróttahús við
skólann, en bygging þess verð-
ur tekin fyrir næst.
Urmið 'hefur verið að jarð-
vegsskiptum í götum síðan
1972 og á næsta ári er stefnt
að því að leggja a. m. k. á aðal-
götuna í gegnum kauptúnið. Þá
stendur til að endurbæta
sjúkraflugvöllinn svo hægt
verði að taka upp áætlunarflug
til Grundarfjarðar.
Varðandi heilsugæslu er góð
samvinna við læknana í Stykk-
ishólmi og hafa þeir aðstöðu í
Grundarfirði til að taka á móti
sjúklingum, en tilfinnanlega
vantar aðstöðu fyrir tannlækni,
sem kæmi þá þangað tíma-
bundið en reglulega.
RANNSÓKNIR Á HEITU
VATNI
Rannsóknir á heitu vatni í
nágrenninu lofa góðu og stend-
ur til að kanna það mál nánar.
Á Berserkseyri, skammt frá
staðnum, kemur t. d. upp heitt
vatn, og mælingar gefa góðar
vonir um árangur borana.
Þetta er stórmál upp á framtíð
staðarins og eins að takast
megi að tryggja nægilegt fersk-
vatn, en það er tæpast nú. Þarf
með ærnum kostnaði að dæla
vatninu langa leið og stendur
til að kanna allar hugsanlegar
leiðir til úrbóta í þessu máli.
íbúafjölgun i Grundarfirði hef-
ur verið örust í öllum kaup-
túnum á Snæfellsnesi undan-
farin ár og sagði Árni það á-
berandi að fólk, sem einhverra
hluta vegna hefði flutt frá
staðnum til annarra kauptúna,
kæmi allt aftur til Grundar-
fjarðar. — Þakkaði hann það
m. a. áhrifum fjallanna um-
hverfis staðinn, en þau eru
mjög stórkostleg og falleg, ekki
síst Kirkjufellið.
SJÁVARFRÉTTIR,
sérrit þeirra,
sem fylgjast
með
sjávarútvegi
og
fiskiðnaði.
Eingöngu selt
í áskrift.
•
Áskriftarsímar
82300 - 82302.
SJÁVARFRÉTTIR,
LAUGAVEGI 178,
REYKJAVIK.
FV 10 1975
63