Frjáls verslun - 01.10.1975, Blaðsíða 75
lega gistingu. Hún veitir upp-
lýsingar um flokkun hótela og
gistingu á einkaheiimilum eftir
því sem óskað er. Utanáskriftin
er: Hotel Accommodation
Bureau, National Exhibiton
Centre, 75 Harborne Road
Birmingham, B15 3DH.
SAMGÖNGUR:
Sýningarsvæðið, sem er um
125 hektarar, er sagt hið feg-
ursta að öllum frágangi, þar
eru stór, rsektuð græn svæði,
tilbúnar tjarnir og gosbrunnar.
No'kkrar helztu hraðbrautir á
Englandi liggja um nágrenni
svæðisins en inni á því verða
bílastæði fyrir 15000 bifreiðar.
Strætisvagnar verða síðan í
förum frá bílastæðunum að
sýningarskálunum.
Frá Liundúnum er hægt að
Líkan af sýningar-
svæðinu í
Birmingham, sem
verða mun hið
viðkunnanlegasta
með grænum svæð-
ium og goshrunn-
um til skrauts.
komast til sýningarsvæðisins á
hálfum öðrum tíma með hrað-
lest, sem gengur á hálftíma
fresti.
Alþjóðlega vorsýningin í
Birmingham er skipulögð af
Trade Promotion Services Ltd.
í Lundúnum, en sömu aðilar
hafa skipulagt fjölda margar
aðrar gjafavöru sýningar í
Lundúnum, Blackpool og Glas-
gO'W.
Fiskiðja Sauðárkróks hf.:
150 manns að staðaldri
í fiskvinnunni
Hluthafar yfir 300 talsins
Frjáls verslun hitti Martein
Friðriksson nýlega að máli, en
hann er framkvæmdastjóri
Fiskiðju Sauðárkróks hf., og
leitaði frétta hjá honum af út-
gerðamálum staðarins. Mar-
teinn sagði að frá Sauðárkróki
væru gerðir út þrír skuttogarar,
fimm mótorhátar og all margir
opnir trillubátar, sem stunda
stopult veiðar.
Marteinn Friðriksson, framkvæmdastjóri Fiskiðju Sauðárkróks h.f.
Það er Útgerðarfélag Skag-
firðinga sem á og rekur skut-
togarana, sem eru Hegranes SK
2, 38 m byggt í Frakklandi
1966; Drangey 1, 47 m, byggð
í Japan 1972, og Skafti SK 3,
45 m, byggður í Noregi árið
1972. Innrétting lestar í Hegra-
nesi er eingöngu stíur fyrir
lausan fisk, % af lestarrými í
Drangey er fyrir kassa og öll
lest Skafta er fyrir kassa.
HLUTHAFAR YFIR 300
EINSTAKLINGAR OG
FÉLÖG
Að Útgerðarfélagi Skagfirð-
inga hf. standa Sauðárkróks-
kaupstaður, Hofsóshreppur
FV 10 1975
75